Markmiðið með LB er að selja íslenskt handverk. Þegar í upphafi sýndu nokkrir félagar Ullarselsins á Hvanneyri áhuga á að taka þátt í verkefninu og Vaxtarsamningur Vesturlands ákvað að styðja verkefnið ef það mætti verða til þess að stuðla að aukinni sölu á vörum sem búnar eru til í Borgarfirði og víðar um land.
Hugmyndafræðin er einföld. Um allt land búa handverksmenn sem framleiða frábærar vörur. Daglega er þetta sama fólk yfirleitt að sinna búskap eða vinnur fullan vinnudag við allt milli himins og jarðar. Víða er verið að framleiða afar góðar vörur úr náttúrulegum efnum sem oft vaxa eða eru fengin í næsta nágrenni. Flutningskostnaður á hráefnum er yfirleitt í lágmarki.
Félagar í Ullarselinu eru gott dæmi um samtakamátt fólks í dreifbýli, en Ullarselið hefur starfað árum saman enda er hagfræðin að baki starfseminni íslensk fyrirhyggja og skynsemi sveitamanna.
Áhugi fólks á heimaunnum vörum og alþýðulist fer stigvaxandi. Það vill fá hluti sem eru unnir af alúð og án aukaefna. Það vill stuðla að framleiðslu vara sem krefjast ekki hráefna sem eru flutt heimshorna á milli með tilheyrandi mengun og orkusóun.
LB er hugarsmíð undirritaðs, starfsmanns Landbúnaðarháskóla Íslands. LB er tilraun sem Vaxtarsamningur Vesturlands var svo framsýnn að styrkja.
Áskell Þórisson - ask@simnet.is - sími eftir kl. 17 á daginn 843 5307.
Kennitala: 190353-5329. VSK-númer 36139
Myndir í Myndabankanum tók Jón Ingi Cæsarsson. Vinsamlega virðið höfundarrétt.








