Vörur í LB eru yfirleitt búnar til eftir pöntunum. Afgreiðsluferill hefst ekki fyrr en greiðsla berst til LB. Að sjálfsögðu er áhersla lögð að flýta afhendingu eins og kostur er. Ef um er að ræða t.d. peysu eða grip sem er flókinn í framleiðslu (eða ef handverksmaðurinn hefur mjög mikið að gera) má þó gera ráð fyrir að það geti liðið allt að þrjár vikur frá pöntun þar til sending fer til kaupanda.
Vörur LB eru ekki alltaf nákvæmlega eins og sjá má á myndum. Vörur í LB eru handverk, hver hlutur er einstakur en að sjálfsögðu er reynt eftir megni að líkja eftir því sem sýnt er á myndum á vef LB.
ATHUGIÐ: Framleiðendur sem selja í LB eru dreifðir um allt land. Þeir annast sjálfir pökkun og sendingu. Þetta þýðir að ekki er hægt að setja í einn pakka vörur frá fleiri en einum framleiðanda. Ef keyptar eru vörur t.d. frá tveimur aðilum innan LB fær kaupandi tvo pakka. Kaupandi greiðir flutningskostnað þegar hann nær í vöruna á pósthús.
Vörukaup
Þeir sem áhuga hafa á að kaupa vörur í Lb eiga að snúa sér beint til kaupanda. Símar og netföng eru í texta um viðkomandi framleiðanda. Framleiðandi vöru ber ábyrgð á sinni framleiðslu. Ef kaupandi telur vöru gallaða ber honum að snúa sér til viðkomandi framleiðanda.
Athugið að í flestum tilvikum greiða kaupendur sendingarkostnað þegar þeir ná í vöruna á pósthús. Sendingakostnaður Sjá hér
Sendingar til útlanda. Flutningskostnaður er ekki innifalinn í vöruverði.








