Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Ingibjörg Jónasdóttir

Ingibjörg Jónasdóttir man vart eftir sér öðru vísi en með einhverja handavinnu. Hún er fædd árið 1952 í Brákarey í Borgarnesi og uppalin í Borgarnesi. Árið 1977  flutti hún að Hvanneyri og hefur átt þar heima síðan.

„Mér þykir mjög gaman að vinna með íslensku ullina, hún er einstaklega lifandi hráefni,“ segir Ingibjörg, en prjónaskapur og önnur tóvinna hefur verið hennar aðalstarf nokkur undanfarin ár.

„Ég lærði að prjóna sjö ára gömul, en að sjálfsögðu var það hvorki fugl né fiskur sem út úr þessum fyrstu skrefum mínum á prjónabrautinni kom,“ bætir hún við. Móðursystir hennar leiðbeindi henni og þær höfðu þann háttinn á að Ingibjörg prjónaði eina umferð, en gat með engu móti prjónað þá næstu, „því þetta var óskaplegur neglingur,“ segir hún. Frænkan  prjónaði því næstu umferð, til að losa um lykkjurnar. Síðan prjónuðu þær, hvor um sig, aðra hverja umferð.

Ingibjörg hefur verið félagi í Ullarselinu frá árinu 1997 en Ullarselið er verslun með vandað handverk, sem unnið er úr íslenskri ull og öðru íslensku hráefni. Þar eru gömul vinnubrögð við vinnslu ullar í hávegum höfð. Ullarselinu var ýtt úr vör árið 1992. Það var þróunarverkefni til að byrja með, en að því stóð Bændaskólinn á Hvanneyri, Búnaðarsamtök Vesturlands og Kvenfélagasambönd á Vesturlandi.

Í Litlu búðunum mun Ingibjörg selja ýmsar vörur í „gleðilitunum“ sem hún kallar svo. Einnig sams konar vörur í sauðalitunum, fyrir þá sem ekki eru eins „glaðir“.

SKIPTU BEINT VIÐ FRAMLEIÐANDA. ÞAÐ
ER HAGKVÆMARA OG ÓDÝRARA!

Ingibjörg Jónasdóttir
Túngötu 9
311 Borgarnes
S. 437 0078 og 847 1264
inga@vesturland.is

 


 

 


Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf