Flýtilyklar
Guðrún Ásgerður Steingrímsdóttir
Guðrún Á. Steingrímsdóttir býr á Stekkjarflötum í Eyjafjarðarsveit. Fjölskyldan var þar með kúabúskap á árunum 1979 til 2001, en síðan hefur verið stundaður "áhugabúskapur". Á sumrin hefur Guðrún umsjón með Smámunasafni Sverris Hermannssonar sem er í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit.
Guðrún fór á námskeið árið 1993 hjá Dananum Sören Nordenkjær til að læra vinnslu horna og beina. Síðan hefur hún hannað og þróað sínar hugmyndir sem eru bæði nytjahlutir og skartgripir. Hún hefur einnig sótt námskeið í tréskurði og tálgun. Skólaárið 2001–2002 stundaði hún nám í miðaldahandverki við Bäckedalsfolkhögskola í Svíþjóð, með megináherslu á skinnaverkun og skinnahandsaum. Ég vinn með alls kyns hráefni, en einna helst um þessar mundir með horn og bein," segir hún.
Guðrún hefur tekið þátt í ýmsum handverkssýningum hérlendis og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu síðastliðið sumar og kallaði hana „Margt býr í kýrhausnum,“
„Þetta voru um 70 stykki af kýrhornum sem hvolt var
fyrir stálstöng en stönginni var stungið í steypuklessu sem líktist kúadellu,“ segir hún en sýningin var í
haughúsinu á sveitahótelinu að Þórisstöðum á Svalbarðsströnd. „Eftir að hafa verið í miðaldahandverkinu í Svíþjóð hef ég verið dálítið upptekin af miðöldum og
verið þátttakandi í að skapa miðaldastemmingu á Gásum eina helgi á sumrin, en til þess að geta verið með í
því þarf maður að koma sér upp fatnaði og öðrum viðeigandi búnaði. Ég saumaði mér fyrst einn kjól í
Svíþjóð og gerði skó úr mjúku skinni, síðan hef ég saumað nokkra kjóla fyrir mig og líka aðra auk þess
að sauma miðaldabúning á manninn minn,“ segir Guðrún. Svonefndar strútshettur fylgja þessum búningum gjarnan og þær á
hún yfirleitt á lager, en um er að ræða höfuðfat með áföstu herðasjali og löngum strút sem lafir niður á bak, en af
strút þessum dregur hettan nafn sitt. Fatnaður frá þessum tíma var fyrst og fremst úr vaðmáli, hör og þeir efnameiri notuðu
silki. Hann var gjarnan skreyttur með spjaldofnum litríkum böndum, hringprjónsnælur voru úr smíðajárni eða bronsi og
þá voru einnig fleiri skartgripir notaðir.
ÞAÐ ER ÓDÝRARA OG HAGKVÆMARA
AÐ SKIPTA BEINT VIÐ FRAMLEIÐANDA!
Guðrún
Ásgerður Steingrímsdóttir
Netfang: stekkjar@simnet.is
Stekkjarflötum
601 Akureyri
S. 865 1621 og 463 1282









