Flýtilyklar
Þórdís Guðný Magnúsdóttir
“Ég hef allt frá unga aldri haft áhuga á hverskonar handverki og í seinni tíð hef ég heillast af náttúrulegum
efnivið,“ sagði Þórdís Guðný Magnúsdóttir sem fædd og uppalin er í Reykjavík en bý í Kópavogi.
Hún lauk leikskólakennaraprófi árið 1992 og prófi af hönnunarbraut Iðnskólans í Hafnarfirði 2001 og árið 2008
B.ed grunnskólakennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands með textílmennt sem aðlgrein. Auk þess hefur hún sótt fjölda
námskeiða.
Fyrir 15 árum fór hún að búa til steinamyndir en steinana tínir hún í fjörunni við sumarbústað foreldra sinna sem er
rétt utan við Akranes. Þegar heim er komið málar hún á steinana sem allir eru sérstaklega valdir auk skelja sem einnig má sjá í
myndunum. Bakgrunnurinn ser svo málaður með vatnslitum. Hver mynd er þvi einstök.
“Fjaran er minn uppáhaldsstaður og finnst mér alltaf jafn gaman að ganga þar um og skoða og tína það sem þar má finna hverju sinni,
segir Þórdís sem hefur prjónað mikið um ævina og skemmtilegast finnst henni að hanna frá grunni flíkur og fylgihluti og er íslenska
ullin í mestu uppáhaldi. “Kragarnir mínir sem ég kosið að kalla “Hlýja” eru allir úr íslenskri ull og nota ég
aðeins hina hefðbundnu sauðaliti þó svo að þeir séu að einhverju leiti litaðir hjá framleiðanda og nota ég einungis
tölur úr beini eða horni.“
Allar vörur frá þessum framleiðanda









