Flýtilyklar
Bára Þóranna Svavarsdóttir
Bára Þóranna Svavarsdóttir er frá Efri-Mýrum í Húnavatnssýslu en hún flutti ung til Sauðarkróks og hefur
búið þar síðan. Bára vann í röska tvo áratugi við saumaskap hjá Saumastofunni Vöku.
„Eftir að ég hætti að vinna hef ég prjónað mikið,“ sagði Bára sem hefur um nokkurt skeið selt handprjónuð
ungbarnaföt í versluninni Alþýðulist í Skagafirði og nú hefur hún tekið upp samstarf við Litlu búðirnar.
Bára notar jöfnum höndum Lanet og Sisu garn í prjónaskapinn.
Bára er kona auðug en hún á níu barnabörn og fjögur langömmubörn þegar þetta er ritað vorið 2010 – og fimmta
langömmubarnið er væntanlegt í sumar.
Allar vörur frá þessum framleiðanda









