Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Björk Pétursdóttir

Björk Pétursdóttir var kúabóndi á Gásum við Eyjafjörð í rösklega 30 ár. Hún er fædd og uppalin á Hraunum í Fljótum í Skagafirði. Hún útskrifaðist úr handmenntadeild Kennaraskóla Íslands vorið 1972 og stundaði kennslu með smá hléum í 20 ár með börnum, búskap og í góðri samvinnu við eiginmanninn, Gylfa Traustason.
 
"Ég hef frá því ég man eftir mér verið að sauma, prjóna og hanna allt mögulegt. Í mörg ár hef eg ætlað að búa til eitthvað nýtt úr þessum dásamlega æðardúni mínum," sagði Björk sem á hlut í æðarvarpinu á Hraunum með bróður sínum. Þau Björk og Gylfi sjá um æðarvarpið með honum og fá hjálp frá nokkrum útvöldum vinum við að tína æðardúninn.

"Ég hreinsa svo minn dún, fyrst í vélum, svo handtíni ég fjaðrirnar og síðast handþvæ ég dúninn og þurrka. Þá fyrst er æðardúnninn tilbúinn til notkunar í skjólin sem ég framleiði," segir Björk og bætir því við að hún sé með fullt af hugmyndum um nýtingu æðardúnsins. Og hún lætur ekki sitja við orðin tóm heldur býr til hluti sem eru hvergi í veröldinni til nema heima hjá þeim hjónum í Tungusíðu 4.

Björk leggur áherslu á að nota ekkert nema náttúruleg efni utanum dúninn frá Hraunum. "Núna nota ég 100% bambusefni í dúnskjólið sjálft. "Það hnökrar svolítið en vandfundið er efni sem er náttúrlegt, en um leið örþunnt og mjúkt," segir Björk sem á sjö börn og "fullt af yndislegum barnabörnum."

Þess má geta að haustið 2004 fluttu þau hjón til Akureyrar og á meðfylgjandi mynd má sjá Björk með æðardún sem kom úr einu hreiðri. Þarna er búið að hreinsa dúninn og handþvo.

Mynd sem sýnir hvar Hraun er á landinu má sjá hér.

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf