Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Margrét Arnar

Margrét Arnar hefur um árabil haft mikinn áhuga á handverki. „Ég hef alltaf unnið mikið með þráð og skiptir þá engu hvort hann er úr ull, bómull, kopar eða silfur. Ég lærði að gera keðjur fyrir um fjórum árum hjá Kristbjörgu Magnadóttur þegar ég hóf störf á handverksmiðstöðinni Punktinum,“ sagði Margrét. „Ég var í upphafi ráðin vegna kunnáttu minnar í vefnaði en fljótlega var ég farin að sjá um námskeið í keðjugerð, skartgripagerð, þæfingu og kertagerð svo eitthvað sé talið.“
 
Margrét notar því sem næst eingöngu silfurvír í keðjurnar. Vírinn er til í mörgum grófleikum frá 0,25mm til 2mm.  Fyrst þarf að gera hringina, vírnum er vafið utanum tein þannig að hann myndar gorm. Gorminn sagar Margrét svo niður eftir endilöngu og fæ með því hringina. „Það er nauðsynlegt að vanda það verk, því ef sögunin er ekki góð falla hringirnir ekki saman. Hver hringur er svo opnaður, honum smeygt í annan hring og lokað,“ segir Margrét og lætur þess getið að munstrin séu í raun óteljandi.

Þegar keðjan er tilbúin er hún sett í tromlu með stálhöglum og þannig er keðjan pússuð. Þess má geta að í einu armbandi með drottningarkeðjumunstri geta verið allt að 230 hringir.  Margrét hefur sótt ótal námskeið í handverki. Þar má nefna námskeið í silfursmíð, jurtalitun og þæfingu en hið síðastnefnda er mikið áhugamál Margrétar Arnar, sem lauk fornámi frá Myndlistarskólanum á Akureyri á sínum tíma.

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf