Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Ásthildur Thorsteinsson

Ásthildur Thorsteinsson á Hurðarbaki í Reykholti hefur búið í Borgarfirði frá árinu 1973, en er Reykvíkingur að upplagi.   Hún er húsmæðraskólagengin og hefur um tíðina sótt ýmis námskeið, m.a. í prjónatækni og flókagerð í Danmörku. Að Hurðarbaki er sauðfjárbú, en Ásthildur er einnig félagi í Ullarselinu og hefur verið í rúm 10 ár.  Handavinnu af margvíslegu tagi hefur hún stundað frá unglingsaldri, „Ég var mjög dugleg að sauma á mig föt hér áður fyrir; saumaði eitthvað nýtt fyrir hvert ball!“ segir hún.

Þegar hún flutti í Borgarfjörðinni keypti hún sér prjónavél og var iðinn við prjónaskapinn, sat við löngum stundum og peysur hennar frá þeim árum eru vel þekktar. „Ætli ég hafi ekki prjónað peysu á nánast hvert barn í sveitinni. Menn muna enn eftir þessum peysum mínum,“ segir hún.

Eftir að hún sótti námskeið í tóvinnu hjá Jóhönnu Pálmadóttur á Akri varð ekki aftur snúið. Áshildur snéri sér að ullinni en hin síðari ár kveðst hún að mestu hafa verið í hönnun, enda hafi hún mest gaman af þeim þætti nú.  „Ég hef nú verið í ýmsu. Eitt sinn fór ég á námskeið þar sem unnið var með hrosshár og var í því á tímabili, en svo þróast þetta alltaf eitthvað,“ segir hún.

Undanfarin misseri hefur Ásthildur einkum gert húfur,  sem hún nefnir Jöklahúfur.  Hún prjónar tvær gerðir, önnur er með stroffi, þ.e. er slétt og brugðið að neðan en hin er með togi í topp.  Báðar eru til í ýmsum litum en alltaf hvítar í efripart.  „Á tímabili var ég mikið á ferðinni á Snæfellsnesi en það hefur alltaf heillað mig.  Hugmyndin að þessum húfum kviknaði þar,“ segir hún og bætir við að á Snæfellsnesi hafi líka orðið til fleiri hugmyndir sem hún vinni með. Þriðja húfan  sem Ásthildur gerir er með flötum koll, en allar hafa þær notið mikilla vinsælda.

Ásthildur hefur líka verið liðtæk í rúgbrauðsbakstri, kallar brauð sitt Hurðarbaksbrauð enda er það bakað í Hurðarbakshver.  Ásthildur hefur tekið þátt í sýningum þ.á.m. einni í Danmörk en hér heima hjá Handverki og hönnun, Vestnorden Art & crafts og ýmsum sýningum með Ullarselinu.

Ásthildur er félagsmaður í Ullarselinu og á vörur í samnefndri verslun á Hvanneyri.

Viltu kaupa vörur af Ásthildi?
Sími: 616 2012
Netfang: ath@vesturland.is

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf