Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Ólöf & Sigríður

Konurnar í bílskúrnum við Freyjugötu 28 búa til glerlistmuni svo sem bakka, kertastjaka og skartgripi. Þær ætla að bjóða skartgripi í Litlu búðunum. Konurnar í bílskúrnum eru þær Sigríður M. Kristjánsdóttir og Ólöf S. Arngrímsdóttir og eru báðar kennarar.

Sigríður er myndmenntakennari og kynntist glerlistinni í námi sínu í myndmenntadeild Kennaraháskólans. Hún hefur einnig sótt nokkur glerlistnámskeið hjá Jónasi Braga glerlistamanni. Hún kennir m.a. glerlist. Ólöf er sérkennari og kynntist glerlistinni hjá Sigríði. Auk þess hefur hún farið á glerlistnámskeið hjá Gliti og hjá Brynhildi Þorgeirsdóttur myndlistarmanni.

“Það hafði lengi verið draumur okkar að koma upp aðstöðu til að vinna í gler. Við lögðum að lokum undir okkur bílskúrinn og fundum ofn og höfum verið í þessu síðan,” sögðu þær glaðhlakkalegar. “Í fyrstu vorum við aðallega  að þessu fyrir okkur sjálfar, til eigin nota og gjafa. Síðan fóru vinir og ættingjar að sýna glermununum áhuga og nú erum við farnar að fara með glermunina á handverksmarkaði eins og t.d. að Hrafnagili  í Eyjafirði og á jólamarkaðinn við Elliðavatnsbæinn í Heiðmörk.

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf