Flýtilyklar
Guðný Svavarsdóttir
Guðný Svavarsdóttir var aðeins sex ára gömul þegar hún lærði að prjóna. Það var móðurbróðir
hennra sem tók verkið að sér. “Eftir það var allt sett á fullt við að framleiða dúkkuföt og fylgihluti. Síðan
tók barnafataprjónaskapur og inn á milli þá runnu peysur og kjólar á sjáfa mig fram af prjónunum og þá oftast nær
eigin hönnun. Nú orðið er ég ragari við að hanna sjálf, finn mér frekar góða uppskrift og föndra kannske dulítið við
hana bara svona til að fá smá persónulegri tilfinningu fyrir henna", segir Guðný sem býr á Höfn í Hornafirði.
Guðný lærði tiltölulega fljótt að prjóna dúka og hefur hún skemmt mér við svoleiðis prjón inn á milli
þess sem hún prjónar úr lopanum sem henni finnst yndislegt að fást við. “Þá hef ég haft það fyrir venju að finna
mér prjónabúðir þegar ég fer til útlanda og kaupi mér garn sem minjagripi. Besta búðin sem ég hef fundið hingað til er
í Montréal í Kanada en þá búð eiga hjón sem bæði lifa sig inn í það að þjóna stórum hóp
af viðskiptavinum víðsvegar,” segir prjónakonan Guðný Svarsdóttir.
Allar vörur frá þessum framleiðanda









