Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Elisabeth Johanna Zitterbart

Elisabeth Johanna Zitterbart þekkir íslensku ullina afar vel. Það er raunar athyglisvert að margir þeirra sem flytja til Íslands, sjá landið og gæði þess allt öðrum augum en flestir heimamenn. Hinir aðkomnu sjá oft möguleika sem öðrum eru huldir eða hafa hreinlega gleymst í lífsgæðakapphlaupinu. Elisabeth sá ullina og hvað fólk getur gert til að bjarga sér sjálft í að útbúa hollan, næringarríkan mat úr hráefnum sem hafa um aldir verið við hlið manna.

Elisabeth flutti til Íslands árið 1990 og býr ásamt eiginmanni sínum og fjórum börnum á Ytri Bægisá í Öxnadal á Norðurlandi. Elisabeth er fædd og upp alin í Suður-Þýskalandi en segja má með sanni að landslag og búskaparhættir séu nokkuð á annan veg þar um slóðir en í Öxnadal.

Þau hjónin reka sauðfjárbú og eru með nokkur hross og tvær kýr. Lífsskoðun Elisabeth kemur e.t.v. best fram í því þegar hún segir: "Alla tíð hefur mér fundist mikilvægt að geta bjargað mér sjálf með sem flest. Mjólkina fáum við úr þessum tveimur kúm og þaðan kemur líka smjörið, jógúrtin og súrmjólin. Ferskostarnir skyr og kotasæla eru heimatilbúin. Ullin er líka nýtt fyrir heimilið,” segir Elisabeth sem í upphafi byrjaði að þæfa ullina. Hún segist hafa viljað nýta... “það stórkostlega hráefni sem íslenska ullin er.“  Og þar með hófst ferill sem Elisabeth sem skógerðarkonu. “Ég byrjaði fyrir um það bil tíu árum að þæfa inniskó og uppgötvaði fljótt að það að þæfa er skemmtileg iðn og góð aðferð til að nýta íslensku ullina.”

Í byrjun fékk Elisabeth leiðsögn hjá öðrum þæfingakonum fyrir norðan, en sótti síðan nokkur námskeið með erlendum kennurum. “Allt sem ég þæfi er úr íslenskri ull og undirstaðan er ullin okkar frá Bægisá. Eina sem ég kaupi af ull er litaða ullin sem ég nota til að skreyta viðkomandi hlut. Íslenska ullin hentar vel í nytjahluti eins og skó, töskur, sessur, diskamottur og slíkt. En auðvitað er annars hægt að gera hvað sem er. Börnin hafa til dæmis fengið mig þess að þæfa tuskudýr -  slöngur, hvali, seli og lunda," segir Elisabeth og hlær dátt.

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf