Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Erla Runólfsdóttir

Erla Runólfsdóttir er fædd og uppalin til 7 ára aldurs í Keflavík, en flutti síðar til Lauga í Reykjadal í Suður Þingeyjarsýslu. Hún hefur frá unga aldri haft mikinn áhuga á hvers kyns handverki og listsköpun þar sem foreldrar hennar eru mikið lista- og handverksfólk.  Erla er útlærð sem prentsmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík og lauk síðan námi í Danmörku sem fatahönnuður. Hún hefur einnig sótt hin ýmsu námskeið sem tengjast handverki t.d. skrautskrift, keramik, öskjugerð og heimasíðugerð.

Erla býr í Struer í Danmörku, með manni sínum og 1 barni, 3 elstu börnin eru flutt að heiman og stunda nám í USA og í Danmörku. „Ég hef mikið dálæti á íslensku hráefni og í lokaverkefni mínu frá Textilskólanum hér í Danmörku notaði ég eingöngu náttúruefni, þar á meðal íslenska ull og fiskiroð, sem vakti mikla athygli og lukku,“ segir hún.  Erla er meðlimur í NordVest Kunst á Jótlandi.

Árið 2009 hannaði Erla sína eigin heimasíðu, www.rankadesign.dk þar sem hún hefur auglýst sína vöru og þjónustu. Hún hefur eingöngu unnið sínar vörur í aukavinnu þar sem hún er í fullri vinnu hjá Bang & Olufsen í Struer. Erla tók þátt í sölusýningu á Gimsinghoved (Kulturhús í Struer) í desember síðastliðinn, þar sem rósirnar úr fiskiroðinu vöktu mikla athygli og undrun. Nælurnar hafa selst mjög vel, og Dönum finnst þetta mjög merkilegt hráefni að vinna úr. Einnig hefur Erla búið til öskjur eftir pöntunum, þar sem hún vinnur eftir óskum viðskiptavinarins. Öskjurnar býr hún til alveg frá grunni. Hægt er að skoða myndir af ýmsum öskjum á heimasíðu hennar.

„Ég komst fyrst í kynni við fiskiroð þegar bróðir minn sendi mér nokkur roð til Danmerkur. Ég varð yfir mig hrifin og ákvað að geyma roðin fyrir lokaverkefnið mitt í Tekstilskólanum. Mér finnst þetta vera það allra flottasta og skemmtilegasta hráefni að vinna úr, það eru endalausir möguleikar. Hugmyndina af rósunum fékk ég þegar ég var að spá í hvað ég ætti að gera við allar afklippurnar af roðinu, ég tímdi að sjálfsögðu ekki að henda þeim!”

Erla hefur alla tíð bjástrað við eitthvað föndur, og flest hefur hún gefið frá sér til vina og fjölskyldu. Nú ætlar hún að prófa að selja rósirnar hjá Litlu búðunum, og það er aldrei að vita nema eitthvað fleira bætist við ef viðtökur verða góðar. Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf