Flýtilyklar
Svava Kristín Egilson
Svava Kristín Egilson hefur um árabil lagt stund á nám í ýmsum skólum sem leggja áherslu á mismunandi listform – og má
þar á meðal nefna Myndlistarskólann á Akureyri. Í verkum hennar er að finna ýmis tákn sem rekja má til íslenskrar
náttúru, en litir og form í náttúrunni hafa ávallt hrifið Svövu.
Aukreitis hefur hún hannað og saumað búninga fyrir leikfélög, hannað bókakápu og myndskreytt barnabók.
”Í myndlistinni vinn ég með vatnsliti , akrýl, dúkristu, og textile og blanda því saman á margvíslegan hátt leyfi
sköpunargleðinni að leiða mig áfram án takmarkana,” segir Svava Kristín. “Haustið 2008 fór ég að vinna með ullina
í nytjahluti byrjaði með handstúkur og síðan hatta og aðra fylgihluti. Ullina hef ég svo tekið með mér í myndlistina og nota
ég hana mikið í textílverk´og lítil myndverk og bókamerki. ”
Svava Kristín segir að það henti sér vel að vinna í mismunandi efnum. “Ástæðan er sú að hver þráður og
hvert blæbrigði litanna, ásamt mismunandi áferð bjóða upp á óendanlegar uppgötvanir.”
Í mörg undanfarin ár hefur Svava aðallega starfað við myndlist og hönnun og rekið vinnustofu í Brekkugötu 2 í Hafnarfirði frá árinu 2003.
Allar vörur frá þessum framleiðanda









