Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Friðrik Georgsson

Friðrik Georgsson (Foggi) er Keflvíkingur. Árum saman starfaði hann sem rafvélavirkjameistari en á síðari hluta starfsævinnar vann hann hjá útlendingaeftirlitinu á Keflavíkurflugvelli.  „Fyrir margt löngu fór ég að velta því fyrir mér hvers vegna við Íslendingar keyptum hluti sem við gætum allt eins búið til hér heima.  Við höfum alltaf verið fastir í vananum og einblínt á fiskinn, svo þegar álið kom til sögunar fluttum við það allt út og keyptum það síðan unnið til baka.  Ég vissi frá starfi mínu á Keflavíkurflugvelli að útlendingar vildu gjarnan kaupa íslenska minjagripi – framleidda af Íslendingum.  Þá var það að ég hannaði og framleiddi nokkra hraunlampa,“ segir Friðrik.

Smám saman komu fram fleiri minjagripir og má sjá suma þeirra á sölusíðu Litlu búðanna.  „Jafnframt fór ég að hanna nytjahluti eins og fánastangir, en okkur skorti svona fánastangir svo við gætum haft íslenska fánann uppi til að minna okkur á landið okkar. Raunar tel ég að íslenski fáninn eigi að vera til á hverju heimili og Íslendingar eigi að taka hann með þegar þeir fara utan og gefa vinum.  Fánarnir á stöngunum eru búnir til á hinu horni landsins, Þórshöfn.

Friðrik rennir alla hluti sjálfur og slípar álið, en hraunið og hraunmolarnir eru ekki langt undan. „Reykjanesskaginn er byggður upp á hverju hraunlaginu á fætur öðru. Ef svo ólíklega vildi til að okkur færi að skorta hraun þá er ekki um annað að ræða en að biðja um nýtt eldgos!“ segir Friðrik og hlær.

Hraunið á Reykjanesskaganum er frá ýmsum tímum en fyrsta gosið á Reykjanesi, eftir að land byggðist, rann á 12. öld. Á Reykjanesi eru sem sagt mörg mismunandi hraun sem Friðrik sækir í hráefnið. Kjarninn í hraunmolunum sem hann notar var um 1200 gráðu heitur þegar hraunið kom upp á yfirborðið. Hraunið hans Friðriks er eins og náttúran mótaði það, engir tveir steinar  eru eins. Og hver einstakur hraunmoli er brot úr íslenski sögu. Glóandi hraun á sér  
> rætur djúpt í iðrum jarðar. Þegar það svo brýst út með gífurlegum krafti mótast það í náttúrlegar kynjamyndir - það eru þessar kynjamyndir sem Friðrik færir okkur heim í stofu.

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf