Flýtilyklar
Ásta Sýrusdóttir
Tilviljun réð mestu um að fyrirtækið Purity Herbs á Akureyri varð til. Það var stofnað árið 1994 og er því 15 ára gamalt. Eigandi þess er Ásta Sýrusdóttir. Hjá fyrirtækinu starfa fimm manns og það framleiðir yfir 60 tegundir af kremum og olíum
Kremin voru í fyrstu búin til í eldhúsinu heima hjá Ástu og eingöngu ætluð heimilis- og vinafólki. Náttúrulegar afurðir jurtir af ýmsu tagi voru notaðar við framleiðsluna.
Ásta vann á leikskóla og þar var drengur sem þjáðist af slæmu exemi, en kremin höfðu virkað vel á slíkt og spurði Ásta því móður drengsins hvort hún mætti prófa það á stráknum. Það var auðsótt og er skemmst frá því að segja að kremið var mjög áhrifaríkt . Í framhaldinu spurði móðirin Ástu hvort faðir sinn mætti selja þessa vöru í apóteki sínu . Sá var Böðvar Jónsson lyfsali sem þá rak Akureyarapótek. Kremin seldust grimmt og boltinn fór að rúlla. Húsnæði var keypt undir starfsemina og stofnað fyrirtæki um framleiðsluna.
„Við höfum frá upphafi lagt áherslu á að framleiða náttúrulegar vörur, nýtum um 40 tegundir af íslenskum jurtum, sjávarþörungum, hákarlalýsi og fleiri náttúruefnum ,“ segir Ásta og bætir við að allt sé handgert, ,allt frá því að jurtirnar eru týndar, kremin hærð saman, áfylling og límmiðar settir á krukkur. Rotvarnarefnin eru náttúruleg og því ekki skaðleg .
Ásta segir hvetjandi að vörurnar geri gagn og fólki líðu r betur í húðinni við notkun
þeirra, þá hafa margir lýst yfir að þeir hafi losnað við verki, vöðvabólgur og önnur álíka vandamál við
notkun á hinum ýmsu tegundum af olíum sem fyrirtækið framleiðir. „Það gefur lífinu gildi, að finna að vörurnar ger i gagn, ekki
síst þegar börn eiga í hlut,“ segir Ásta.
Hefur þú skoðað heimasíðuna?
www.purityherbs.is
Netfang: info@purityherbs.is
Sími: 462 3028









