Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Ísabella Lárusdóttir

"Mér finnst frábært að konur skuli vera farnar í auknum mæli að hanna og prjóna; sjálfum sér og öðrum til gleði og ánægju," sagði Skagakonan Ísabella Lárusdóttir. "Á mínu uppvaxtarheimili var ekki mikið um prjónaskap. Það var helst að það væru prjónaðir sokkar og vettlingar."

Eins og svo margir Íslendingar lærði Ísabella að prjóna í handavinnu í skóla. "Ég prjónaði allnokkuð fyrir tveimur áratugum en svo kom hlé. Það var fyrir tveimur árum að ég tók upp prjónana að nýju og hef verið ansi iðin við að prjóna síðan. Það eykur og viðheldur líka áhuganum að ég er í frábærum saumaklúbbi á Akranesi. Þar er ekki bara mikið prjónað heldur líka mikið talað. Sumir segja að við konurnar skiptumst á upplýsingum", segir Ísabella og hlær dátt.

Ísabella á þrjú börn og fjögur barnabörn. Hún prjónar mikið á krakkana og segir að slíkur prjónaskapur sé skemmtilegastur.

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf