Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Eldstó

Einstök framleiðsla á sér stað í húsnæði gömlu símstöðvarinnar á Hvolsvelli, en þar er til fyrirtækið  Eldstó Café og Hús leirkerasmiðsins, sem er í eigu hjónanna Þórs Sveinssonar og Guðlaugar Helgu Ingadóttur.

Þór lærði leirkerasmíði á árunum 1971 – ‘75 í Mynd-og Handíðaskólanum, en naut að auki leiðsagnar hjá Gerhard Schwarz frá Þýskalandi og Paul Martin frá Írlandi, meisturum í leirkerasmíði. Hann var til margra ára hönnuður hjá Glit.

G.Helga söng- og leirlistarkona nam leirlist af eiginmanni sínum. Hún var á myndlistarbraut í Fjölbrautaskóla Breiðholts, en naut að auki einkakennslu Gunnars G. Kristjánssonar listmálara. Guðlaug Helga er einnig söngkona og lærði söng við Söngskólann í Reykjavík. Hún brautskráðist þaðan með 8.st. árið 1992.

Framleiðslan í Eldstó er einstakt, íslenskt handverk. Þór handrennir til dæmis alla bikara í nokkrum hlutum og glerungurinn, sem þau nota á gripina, er unninn úr Búðardalsleir og Hekluvikri. Árið 2005 fengu þau hjónin styrk  til að þróa glerung úr þessum leir og vikri. Afraksturinn er íslenskur eldfjallaglerungur sem stenst allar kröfur um hágæða nytjaglerunga, þar sem  engin eiturefni smitast út í drykki eða matvæli. Þróunarvinnan tók langan tíma og má geta þess um gæði glerungsins að diskar úr framleiðslu þeirra á kaffihúsinu hafa verið í notkun stanslaust í tvö ár en eru enn sem nýir. Ekki spillir fyrir að um 10 milljónir tonna af hráefninu munu vera til að sögn Þórs. Það er því lítil hætta á að Eldstó muni skorta efni í gerunginn næstu árhundruðin!

G.Helga býr einnig til skartgripi og er hver hlutur MODEL. Þar notast hún við ýmiss konar efnivið, svo sem gler, postulín, silfur, leður og fl.

Í sama húsi og vinnustofan, er kaffihúsið Eldstó.


G.Helga Ingadóttir
S: 482 1011 & 691 3033          

 

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf