Flýtilyklar
Agnieszka Szczodrowska
Agnieszka Szczodrowska kom til Íslands fyrir tólf árum og lagði strax leið sína til Raufarhafnar. Eins og nafnið bendir til þá er Agnieszka af
pólskum uppruna en Íslendingurinn í henni hefur vaxið og dafnað eftir því sem árin hafa liðið. Íslendingar gáfu henni
fljótt nafnið Aga enda var þeim lífsins ómögulegt að bera fram nafnið hennar. Þeir sem til þekkja vita að á Raufarhöfn er gott
að vera og þar hefur Aga fest rætur.
"Frá unga aldri hef ég haft áhuga á listum. Síðustu árin hef ég teiknað mikið og nota þá pastel-liti en það er gott
að hverfa öðru hvoru frá þeim og fara í eitthvað annað," sagði Aga. "Ég hef til dæmis gaman af því að taka ljósmyndir
og vinna með ull. Ég man enn þegar ég sá þæfðar ullarvörur í fyrsta skipti. Mig langaði strax til að prófa að gera svona
sjálf og fór á Netið og leitaði upplýsinga. Þegar ég var búin að ná tökum á ullinni bjó ég til föt af
ýmsu tagi, sem fólk sýni áhuga á að kaupa. Ég játa að ég elska það frelsi sem maður hefur í handverkinu.
Það eina sem stýrir mér er ímyndunaraflið. Maður sér eitthvað innra með sér og reynir svo að búa til eitthvað
svipað.
Aga selur gjarnan vörurnar sínar í Galleríi Ljósfangi á Raufarhöfn. Þarna er að finna vörur sem fólk á staðnum býr
til. Nefna má glerlist, málverk, vörur úr leir, ljósmyndir og margt annað. "Það er sérstök tilfinning að hanna og búa til
eitthvað fallegt. Það er líka gaman að vita til þess að fólk vilji kaupa hluti sem ég bý til. Ég reyni að gefa hverjum hlut
sína eigin sál og sögu, en þannig verður hluturinn mun meira virði fyrir nýjan eiganda. Og þegar hluturinn er farinn á vit nýrra
ævintýra bý ég til nýja hluti með sama hlutverk - sem er að gleðja þann sem fær gripinn," sagði Aga.
Allar vörur frá þessum framleiðanda









