Flýtilyklar
Erna Björk Antonsdóttir
Allt frá því Erna Björk Antonsdóttir var unglingur hóf hún að gera myndir úr grjóti og alls kyns efni úr
náttúrunni. Það var Guðmundur Magnússon myndlistarkennari sem opnaði Ernu fyrir myndlistinni og kenndi henni að líta eftir efnivið í
umhverfinu til þess að vinna úr. "Fyrir mér opnaðist nýr heimur sem ég heillaðist af og uppáhalds efnið var grjót með
öllum sínum litbrigðum og áferð,"segir Erna Björk. "Guðmundur fór líka með nemendur sína í fjöruferðir í leit
að efniviði. Fjaran hefur alla tíð síðan dregið mig að sér í efnisleit ekki síður en árfarvegir, leirur og fjöllin."
Erna Björk lærði aldagamla mósaíktækni í Ravenna á Ítalíu og nýtir sér hana í verkum sínum
ásamt nútímalegri tækni. "Námið á Ítalíu opnaði augu mín fyrir möguleikunum á því að
nýta mér þessa gömlu tækni í mósaíkgerð í útrás fyrir dálæti mínu á grjótinu
hérna heima og er íslenska náttúran er megin viðfangsefnð í mósaikverkunum. Fjölbreytileiki íslenskrar náttúru hefur
upp á svo margt að bjóða, bæði í efnum, litum og fyrirmyndum," segir Erna Björk Antonsdóttir.
Allar vörur frá þessum framleiðanda









