Flýtilyklar
Ólöf Jónsdóttir
“Ég er kjólameistari að mennt og vann við þá iðn í mörg ár. Ég er líka með diploma í
ferðafræðum og vinn við það í dag,”sagði Ólöf Jónsdóttir, sem er Hafnfirðingur og hefur búið þar alla
ævi fyrir utan eitt ár í Danmörku.
Ólöf sagðist hafa saumað, prjónað, heklað og föndrað en fyrst og síðast fyrir sig sjálfa. “Hugmyndin af eyrnaskjólunum sem
slík er ekkert ný, en þessi útfærsla er mín. Mér datt hún í hug þegar ég bjó í Danmörku. Eitt sinn
vantaði mig afmælisgjöf fyrir vinkonu mína sem er mikil hjólreiðakona. Þetta var alveg kjörið fyrir hana,” sagði Ólöf.
“Einnig notaði ég svona sjálf þar sem ég hjólaði mikið, og þar sem það er mjög oft rok í Kaupmannahöfn var
þetta alveg tilvalið. Ég hjóla einnig töluvert hér á landi á sumrin, og það er svo sem ekki alltaf logn hér heldur
þannig að eyrnaskjólin hafa komið sér vel.”
Þess má geta að Danir tóku útfærslu Ólafar á eyrnaskjólunum vel. Þeir sem eiga leið um Christianshavn ættu að fá
sér kaffi á kaffihúsinu Frederiks Bastion og kaupa sér eyrnaskjól frá Ólöfu Jónsdóttur.
Allar vörur frá þessum framleiðanda









