Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Níels Árni

Níels Árni Lund, skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu hefur í mörg ár samið gamanvísnatexta við gamla revíuslagara og sungið við ýmis tækifæri á þorrablótum, árshátíðum, afmælum og starfsmannaveislum svo eitthvað sé nefnt.  Nú hefur hann gefið út geisladisk þar sem hann syngur sjálfur 14 gamanvísur eftir sjálfan sig og undirleikararnir ekki af verri endanum, eða þeir Gunnar Gunnarsson píanóleikari og Gunnar Hrafnsson sem spilar á kontrabassa.

“Ég ákvað að láta verða af því að gefa nokkra textana út á diski, svona til að heyra einhvern tíma í sjálfum mér og ef vera skyldi að einhver hefði gaman af.  Flestir textarnir eru eins konar smásögur eða skemmtilegar uppákomur úr daglega lífinu, rímaðar í gamansömum stíl, - sumir algjör vitleysa”

Þetta er fallegur diskur og fínir undirleikarar hjá þér.
“ Já, ég er ánægður með hvernig til tókst.  Fyrst ég var að þessu á annað borð fannst mér að þetta ætti að vera þokkalegt og til að vísurnar skiluðu sér lét ég prenta þær með og segi aðeins hvert tilefni hverrar vísu er.  Hvað undirleikarana varðar þá eru þessir listamenn góðir vinir mínir sem tóku hugmyndinni vel og hvöttu mig raunar til að láta verða af þessu.  Það er svolítið gaman að segja frá því að í fyrst skipti sem þeir spiluðu undir hjá mér var það á árshátíð starfsmanna Alþingis sem haldin var á Hótel Sögu.  Ég kom þar með texta við gamalt lag og pikkaði í Gunnar Gunnarson sem ég þekkti þá ekki neitt og spurði hvort hann myndi og vilja spila undir þetta lag -og svo sönglaði ég það í eyrað á honum þar sem hann var að spila fallega dinnermúsikk.  Gunnar er snillingur og þannig skapi farinn að hann segir alltaf já og svo var í þetta skipti.  Svo kom að því að ég stóð upp og hóf að syngja og Gunnar fann strax tóninn og fylgdi mér eftir. Nema hvað eftir smá stund heyrði ég allt í einu í nafna hans á bassanum og síðan komu fleiri hjóðfæri, - þetta var yndislegt og eftir þetta hafa þeir stundum spilað undir fyrir mig þegar þannig hefur staðið á.

Ertu skáld?
“Því fer nú fjarri minn ágæti.  Ég skrifa hins vegar mikið, bæði í vinnunni og eitt og annað set ég niður á pappír heima.  Hvað ljóðagerð varðar er það langmest einnota rugl og man ég ekkert af því stundinni lengur.  Ég hef þó aðeins sett saman eitthvað sem heitir alvara m.a. skírnarsálma fyrir barnabörnin og þeir hafa eitthvað lekið út og notaðir.  Ég hef gaman af að spreyta mig á rími og orðanotkun.”

 

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf