Flýtilyklar
Anna Konráðsdóttir
“Ég fór á námskeið í þæfingum og heillaðist af eiginleikum ullarinnar sem virðist nánast óendanlegir. Ég vinn
sjölin heima,” sagði Anna Konráðsdóttir sem er fædd og upp alin á Sauðárkróki en býr nú í
höfuðborginni.
Frá unga aldri hefur Anna haft mikinn áhuga á öllu er varðar handverk svo sem prjónaskap, útsaum, hekl og þæfingu og nýtir hún frítímann vel til að sinna hugðarefnum sínum. Þá hefur Anna sótt námskeið í glerbrennslu, leirlist, trémálun og þæfingu, sem hafa nýst henni vel við listsköpun sína.
Til margra ára starfrækti Anna prjónastofu þar sem framleiddar voru aðallega vélprjónaðar peysur og gammósíur. Var þessi framleiðsla Önnu seld víða um land og á útimörkuðum í Reykjavík.
Þá eru ótaldar lopapeysurnar sem Anna prjónaði fyrir Handprjónasambandið. Í dag leggur Anna áherslu á þæfð sjöl úr merinó ull og silki. Þessi vara nýtur síaukinnar vinsælda vegna notagildis og fínleika.
Allar vörur frá þessum framleiðanda









