Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Tryggvi Þór Magnússon

Tryggvi Þór Magnússon, húsasmíðameistari er fæddur að Hvammi undir Eyjafjöllum. Tryggvi Þór hefur um árabil framleitt víkinga úr nautshornum, sem hann skreytir með messing. Sumir víkinganna eru ljósir en aðrir dökkir – flestir bera þeir sverð eins og tíðkaðist hér á öldum áður. Skjöldur er líka ómissandi þáttur í búnaðinum!

Fyrstu víkingarnir hans Tryggva sáu dagsins ljós rétt upp úr 1990. Hlé varð á framleiðslunni um aldamótin en um 2008 tók Tryggvi aftur til við að búa þá til. „Ég get ekki sagt hvað varð þess valdandi að ég fór að búa þetta til. Hugmyndin kom óvænt, en líklega var það þetta bogna lag hornsins sem kveikti hana en auk þess eru litirnir einstakir fyrir hvert horn,“ sagði Tryggvi sem einnig býr til öskjur með loki úr tré, leikföng, lampa og fleira. „Það er erfitt fyrir einyrkja að koma sér á framfæri og ég ákvað að prófa að vera með í Litlu búðunum.“
Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf