Flýtilyklar
Guðmundur Karl Ólafsson
Guðmundur Karl Ólafsson er fæddur á Ísafirði árið 1948. Hann hefur starfað við smíðar í rúm 30 ár. Störf
hans hafa verið fjölbreytt. Guðmundur Karl hefur unnið við húsgagna- og innréttingasmíði og ýmsa sérsmíði, en hann hefur
einnig skorið út og búið til skilti sem gjarnan eru sett á sumarbústaði. Það má með sanni segja að Guðmundur Karl sé
þúsundþjalasmiður.
Guðmundur Karl hefur alltaf verið mjög hugmyndaríkur og útsjónarsamur og eyðir ófáum stundum á vinnustofu sinni heima við. Þar
leggur hann meðal annars stund á myndlist og er mjög hæfileikaríkur á því sviði. Hann hefur stundað nám í Myndlistaskóla
Kópavogs í átta ár.
Guðmundur Karl fékk þá hugmynd í Myndlistaskólanum að smíða myndlistatöskur. Kunnugir segja töskurnar mun vandaðri en venja er til -
sterkar og vel smíðaðar. Töskurnar eru úr Abakki við og eru geirnegldar, bæsaðar í mahagony lit og lakkaðar. Sérstök hólf eru
í töskunni sem eru hentug fyrir pensla og liti. Blöð eru geymd í hólfi í lokinu. Töskurnar henta sérstaklega vel fólki sem stundar
myndlist en einnig er hægt að nota töskurnar fyrir nánast hvað sem er.
Guðmundur hefur ekki kynnt töskur sínar almenningi og þær fást eingöngu í LB. Myndin er frá Arnarstapa. Guðmundur málaði hana
árið 2008.









