Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Jóhann Már Jóhannsson

Jóhann Már Jóhannsson bóndi og skipasmiður í Keflavík í Skagafirði hefur gefið út hljómdiskinn Hvert sem ég fer. Jóhann er sjálfur útgefandi.

Diskurinn inniheldur þrettán hugljúf lög. „Ég kalla þetta rauðvínsdisk þ.e.a.s. að ég tel það gott að sitja í rólegheitunum við kertaljós með rauðvín og hlusta á lögin. Þetta eru létt lög og hugljúf í bland og má kannski halda því fram að þau séu dægurlagakennd,“ sagði Jóhann Már í samtali sem birtist á feykir.is Jóhann Már segir að diskurinn sé nokkuð öðruvísi en þeir sem á undan komu. Nú syngur hann ekki eingöngu við píanóundirleik heldur með heilli hljómsveit.

Í samtali við Jóhann Má í sunnudagsblaði Mbl. segir hann: „Síðustu plötu var tekið það gríðarlega vel, eins og raunar hinum fyrri, að ég hugsaði með mér að ég yrði að koma einhvern tímann með aðra. Það var hins vegar enginn asi á þessu og platan hefur verið í tvö eða þrjú ár í vinnslu, enda fer mikill tími í búskapinn og ekki ástæða til að ákveða einhverjar nákvæmar dagsetningar með útgáfuna. Höfum tekið okkur góðan tíma í að velja lög og margsyngja þau fram og til baka. Lítið er orðið eftir af upphaflega lagalistanum,“ segir Jóhann um tilurð disksins.

Jóhann Már hefur alltaf sinnt sönglistinni eins og hans tími frá bústörfum hefur leyft, sungið í kórum til margra ára, m.a. Karlakórnum Geysi á Akureyri, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, Karlakórnum Heimi og Kirkjukór Sauðárkrókskirkju, og verið eftirsóttur einsöngvar á tónleikum og við jarðarfarir. Jóhann Már æfir sig ekki síst í fjárhúsinu eða hlöðunni. „Þar syng ég mikið og held röddinni þannig við. Þetta er eins og með hástökkvarann, ef hann æfir ekki stökkin þá er þetta búið. Ég hef oft montað mig af því að hafa fleiri hundruð áheyrendur á æfingum,“ segi r bóndinn og söngvarinn Jóhann Már og hlær.

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf