Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Ásta Sigurðardóttir

„Dúkkuleikirnir hjá mér snérust meira um það að búa eitthvað fallegt til á brúðurnar fremur en að leika sér,“ segir Ásta Sigurðardóttir á Hvanneyri.  Hún er þátttakandi í Ullarselinu og hefur stundað handavinnu af ýmsu tagi frá barnsaldri.  Ásta er Borgfirðingur í húð og hár.

Hún segist mikið vera í því að spinna og vinna úr ull. "Ég prjóna mikið úr fínu einbandi og hef síðastliðin ár mikið gert af hyrnum og sjölum,“ segir Ásta en þau býður hún til sölu í Litlu búðunum.  „Ég hef alltaf selt svolítið af minni handavinnu og að mestu leyti í Ullarselinu,“ segir Ásta.

Auk þess sem hyrnur og sjöl verða á boðstólum má líka finna handprjónaðar handstúkur. „Ég fer bara rólega af stað og sé hvernig málin þróast,“ segir hún.  Mikil vinna liggur að baki við gerð á handstúkunum, undirbúningur sem getur tekið tíma, eins og að spinna og jurtalita og fleira slíkt.

Hún segist ávallt vera með þónokkuð af pöntunum, enda segir hún að handverk af öllu tagi njóti vinsælda um þessar mundir.  „Það er meðbyr með handverkinu. Íslendingar eru að læra að meta gott handverk og þá hafa erlendir ferðamenn í auknum mæli keypt vandaðar vörur af íslensku handverksfólki,“ segir Ásta.

Ásta er félagsmaður í Ullarselinu og á vörur í samnefndri verslun á Hvanneyri.

Viltu panta vörur hjá Ástu?
Síminn er 437 0062 og 867 9606
Netfang:  astasig@vesturland.is 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf