Flýtilyklar
Ríkharður Valtingojer
Ríkharður Valtingojer er fæddur í borginni Bozen í Suður-Tyrol á Ítalíu. Hann fluttist ungur með foreldrum sínum til Austurríkis og ólst þar upp, aðallega í Schladming og Graz. Í Graz fór Ríkharður í iðnám og lærði silfursmíði á árunum 1949-1952 Að því námi loknu innritaðist hann í Listaskólann í Graz og lauk námi úr málaradeild. Fluttist hann þá til Vínarborgar og lagði stund á listmálun í Listaháskólanum þar.
Að loknu námi í Vínarborg árið 1960 lá leiðin til Íslands. Uppfrá því hefur Ríkharður búið á Íslandi; fyrst í Reykjavík og frá 1985 á Stöðvarfirði, þar sem hann hefur byggt upp góða vinnuaðstöðu bæði fyrir grafík og skartgripagerð. Á Stöðvarfirði rekur Ríharður ásamt fjölskyldu sinni Gallerí Snærós þar sem sýnt er og selt listhandverk og myndlist.
Frá árinu 1974 kenndi Ríkharður í grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og varð síðan deildarstjóri í grafík í Listaháskólanum til ársins 2003.
Árið 1995 byrjaði Ríkharður aftur í silfursmíðinni meðfram myndlistinni. Fór hann
þá að hanna og smíða skartgripi, þar sem hann notaði íslenska steina með silfrinu. Undanfarin ár hefur hann nær eingöngu notað
slípaða Andezit-steina sem hann tínir í austfirskum fjörum.
Hafðu beint og milliliðalaust samband
við handverksmenn! Það borgar sig!
Ríkharður
Valtingojer
Fjarðarbraut 42
755 Stöðvarfjörður
Hs. 475 8931
Fars. 864
9080
Netfang: rikhardur@centrum.is









