Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Rósa Valtingojer

Rósa Valtingojer er fædd og uppalin á Stöðvarfirði en bjó um nokkurrar ára skeið í Reykjavík og var þar við nám í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, á myndlistabraut.

Eftir að hún lauk námi, árið 2003, flutti hún á heimaslóðir á ný, keypti sér lítið og fallegt hús og hefur að mestu búið fyrir austan síðan. Með námi syðra vann hún á Mokka kaffi, en var heima á Stöðvarfirði á sumrin og vann þá í Gallerí Snærós, bæði við afgreiðslu og framleiðslu listmuna.

Rósa vinnur nú í hlutastarfi á leikskólanum á Stöðvarfirði, en aðalstarf hennar er við hönnun og framleiðslu á handverk sínu. Þá vinnur hún um þessar mundir að stofnun lítils hönnunarfyrirtækis ásamt eiginmanni sínum.  „Þetta verður lítið hjá okkur til að byrja með en vonandi geta fleiri komið að þessu síðar. Við vonumst til að geta skapað okkur einhverja atvinnu með þessu.  Við erum að hanna ljós, föt, húsgögn, leikföng og pappírsvöru ýmiskonar.  Allir hlutirnir sem við sköpum eru endurvinnsla á hráefni sem fellur til frá neyslusamfélaginu. Þ.e. húsgögn eru hönnuð og unnin uppúr eldri húsgögnum, efni úr fötum eru notuð til að skapa nýjar flíkur og brúður og þessháttar.  Allar vörurnar eru umhverfisvænar og allar einstakar, engar tvær eins,“ segir Rósa.   

Hún bjó til fyrsta leirfuglinn sinn þegar hún var 13 ára gömul, það var lóa og var hún sýnd á sýningu Handverks og hönnunar, sem bar yfirskriftina „íslenskir minjagripir.“

„Síðan þá hef ég gert nokkra fugla af og til og eins hef ég verið að þróa aðferðir og efni.  Smá saman hafa svo bæst við fleiri tegundir,“ segir Rósa.  „Ég hef verið að vinna í listsköpun  og handverki til fjölda ára.  Ég ólst upp hjá foreldrum sem bæði eru myndlistarmenn svo það var margt í boði.  Núna er ég mest að einbeita mér að hönnunarvinnu, að stórum hluta er ég að vinna með ýmsa hluti sem tengjast  textíl þó svo ég vinni í rauninni með hvaða efni sem er.“

Hafðu beint og milliliðalaust samband við
handverksmenn. Það borgar sig!

Rósa Valtingojer
Fjarðarbraut 50
755 Stöðvarfjörður
Fars. 849 8630
Netfang: rosavalt@yahoo.com

 

 

 



Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf