Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Jóhanna Halldórsdóttir

Jóhanna Halldórsdóttir býr á Brandsstöðum, Austur-Húnavatnssýslu en þar stundar hún búskap ásamt fjölskyldu sinni.  Hún ólst upp á Móbergi í Langadal og segist vera Húnvetningur í húð og hár.

Jóhanna hefur alla tíð haft mikla þörf fyrir að skapa, hún lærði ung að prjóna, sauma, smyrna, og hekla og sat löngum stundum við þá iðju.  Móðir hennar, ömmur og langömmur voru allar miklar hannyrðakonur og þeir sem áhuga höfðu voru virkjaðir til þátttöku í samverustundum þar sem setið var yfir hannyrðum af ýmsu tagi þegar hún var að alast upp.  „Við vorum að útbúa nytjahluti, nýta það sem til var, og áttum góðar stundir saman,“ segir Jóhanna og fagnar því að áhugi á íslensku handverki, prjónuðum peysum úr lopa eða garni hefur aukist til muna eftir bankahrunið.

Jóhanna var á tímabili virk í handverkshópum kvenna á svæðinu, en eftir því sem börnunum fjölgaði og búið stækkaði komst hún ekki í jafn miklum mæli burt frá heimilinu, og hefur því mest verið að dunda við sína framleiðslu, ein heima á bæ.

Jóhanna hefur selt handverk sitt síðastliðna tvo áratugi og segir að fyrirkomulagið hafi verið með þeim hætti að „þetta spyrst út, fólk sér þetta einhvers staðar og spyr hver geri hlutina og hefur svo bara beint samband við mig.  Það er best þannig því allir þurfa að fá að hafa sína sérvisku,“ segir hún.  Þá var hún á tímabili duglega að ferðast á milli markaða hér og þar um landið og gekk ævinlega vel að koma vörum sínum á framfæri.

Jóhanna ætlar að selja lopapeysur sínar í Litlu búðunum sem og barnapeysur.  Þá hefur hún verið iðin við að prjóna ungbarnasett, fyrir alduirnn 0 til 1 árs, en þau rjúka út eins og heitar lummur og því sjaldan nokkuð til á lager.  „Eftirspurnin er svo mikil að ég hef vart undan að sinna pöntunum,“ segir hún.

Þá hefur Jóhanna einnig hannað og gert kort, minningar- og gjafakort svo dæmi sé tekið og fylgja þeim frumsamin ljóð eftir hana.  Þau segir hún njóta vinsælda, enda vilji fólk gjarnan senda persónuleg kort með fallegum orðum og þá sé allt sem íslenskt er líka á ný komið í tísku.

HAFÐU BEINT OG MILLILIÐALAUST SAMBAND!
ÞAÐ ER ÓÝRARA OG HAGKVÆMARA

Jóhanna Halldórsdóttir
Brandsstöðum
541 Blönduós
S. 452 7140, fars. 893 9140

 




Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf