Flýtilyklar
Elfar Logi Hannesson
Elfar Logi Hannesson, leikari og leikhússtjóri er frá Bíldudal en hann býr á Ísafirði. Þar í bæ starfrækir hann Kómedíuleikhúsið á Ísafirði, eina atvinnuleikhúsið í bænum en það hefur verið starfandi frá síðustu aldamótum. „Leikhúsið hefur sérhæft sig í einleikjum en hefur verið að færa sig uppá skaftið og setja á svið tvíleiki, góðir hlutir gerast hægt einsog sagt er,“ segir Elfar Logi. Hann var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar árið 2005. Elfar Logi brautskráðist frá Kómedíulistaskólanum í Kaupmannahöfn árið 1997. Hann hefur leikstýrt ýmsum götuleikhúsum og leikhópum um árin, en segja má að undanfarin ár hafi hann einbeitt sér að vestfiskum leikverkum.
Kómedíuleikhúsið er ekki bara leikhús því það hefur einnig haslað sér völl á hljóðbókamarkaðnum og segir Elfar Logi að árangurinn sé feikilega góður, þannig séu til dæmi tvær fyrstu hljóðbækurnar löngu uppseldar. „Kómedía hefur einbeitt sér að útgáfu þjóðlegra hljóðbóka, leitað í gamla góða sagnaarfinn og gefið út úrval þjóðsagna.“
Fimm fyrstu þjóðlegu hljóðbækurnar eru Þjóðsögur úr Vesturbyggð, Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ, Þjóðsögur úr Bolungarvík, Þjóðsögur af Ströndum og loks Þjóðsögur frá Súðavík. Þjóðlegu hljóðbækurnar fást hér í Litlu búðunum. Kómedía gefur út tvær til þrjár þjóðlegar hljóðbækur árlega og því rétt að fylgjast vel með og vera með frá upphafi til að geta tryggt sér allt safnið. Útgáfa á þjóðlegum hljóðbókum á ensku hófst vorið 2009. Elfar Logi er lesari á þjóðlegu hljóðbókunum
„Upphafið að þessu hljóðbókaræfintýri Kómedíu má reka til
Kómedíufrúarinnar, Marsibil G. Kristjánsdóttur bæjarlistamanni Ísafjarðarbæjar 2009, en hún er mikill unnandi
hljóðbóka og sá þarna tækifæri fyrir leikhúsið og einsog oft áður hafði hún rétt fyrir sér því
viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum,“ segir Elfar Logi.
BEINT FRÁ FRAMLEIÐANDA!
Hafðu samband við Elvar Loga
S. 456 5636 og 891 7025
Netfang: komedia@komedia.is








