Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Gígja Kjartansdóttir Kvam

„Eg hef alltaf haft áhuga á blómum og gróðri, alveg frá því eg man fyrst eftir mér sem smástelpu heima í sveitinni á Svalbarðsströnd,“ segir Gígja Kj. Kvam sem rekur Urtasmiðuna á Svalbarðsströnd.   Hún ólst upp við að  jurtir voru notaðar í matargerð á heimilinu. En það voru ekki einu notin: „amma mín bjó til smyrsli úr græðandi jurtum sem hún notaði bæði á menn og skepnur,“ segir Gígja en smyrslin virkuðu vel á sár, bruna, bólgur og verki t.d. við gigt.

Gígja segir að því hafi legið beint við, þegar hún sjálf stofnaði fjölskyldu, að leita í þann fjársjóð sem hún erfði frá æskuheimilinu. „Eg fór að gera smyrsl og síðar krem og nuddolíur úr jurtunum. Þetta reyndist virka vel á allskonar húðvandamál, flýta fyrir að græða slæm sár, brunasár og ör, ýmis útbrot, þurrk, sviða og kláða. Þessi smyrsl þóttu líka hafa góð áhrif á gigt, liðverki, vöðvabólgu og fleira,“ segir Gígja.

Urtasmiðjan var svo sett á laggirnar fyrir u.þ.b. 20 árum og hefur fyrirtækið alltaf haft að markmiði að framleiða hreinar, náttúrulegar húðvörur án kemískra efna, með íslenskum jurtum og lífrænu hráefni. Framleiðsluvörur Urtasmiðjunnar og landsvæðin þar sem jurtirnar eru tíndar hafa fengið  lífræna vottun frá alþjóðlegu vottunarstofunni Túni ehf.

Af þeim 20 vörutegundum sem Urtasmiðjan framleiðir hafa nokkrar náð miklum vinsældum. Hér má nefna Græðismyrslið sem er orðið mjög þekkt fyrir undraverð áhrif á sár, bruna, ör, margskonar útbrot, sveppasýkingu, þurrk, kláða og sviða og sem alhliða græðandi áburður. Fótaáburður-hælakrem er mýkjandi og róandi á þreytu og óróa í fótum, Vöðva-gigtarolían er þekkt fyrir frábæra virkni á vöðvabólgu, liðaverki og sinadrátt.

Gígja segir að andlitskremin séu líka mjög vinsæl, Rósakrem, Fjallagrasakrem og Morgunfrúarkrem sem og Silki-andlitsolía „sem er algjör vítamínbomba eða djúpnæring fyrir andlitið.,“segir Gígja og bætir við að vörur Urtasmiðjunnar séu ekki lyf. "Þær eru lífræn heilsuvara/snyrtivara með villtum jurtum úr íslenskri náttúru og lífrænu hráefni.“

ÓDÝRARA OG HAGKVÆMDARA
BEINT FRÁ FRAMLEIÐANDA!
Sími: 462 4769
Fax: 462 7040
http://www.urtasmidjan.is
gigja@urtasmidjan.is





 




Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf