Flýtilyklar
Svala Norðdahl
Svala Norðdahl er Reykvíkingur. Hún stundaði nám við Myndlistaskólann í Reyjavík og lauk prófum af listabraut Fjölbrautarskólans í Breiðholti. Svala hefur alla tíð haft mikinn áhuga fyrir listsköpun, hönnun og handverki af ýmsu tagi.
Hún ólst upp við sauma- og prjónaskap á sínu æskuheimili og hafði alltaf nægan efnivið að moða úr í barnæsku þar naut hún aðstoðar og kennslu móður sinnar og ömmu við þau verkefni sem hún tók sér fyrir hendur.
“Ég hef alla tíð hannað flíkur sem ég svo hef prjónað eða saumað“ segir hún. „Þær hafa ýmist verið á sjálfa mig, börnin mín, nýttar til gjafa eða þá að ég hef útbúið þær fyrir aðra. Þetta hefur smátt og smátt verið að vinda upp á sig og orðið umfangsmeira,“ segir Svala, en hún hefur líka selt handverk sitt í galleríum. Á liðnu sumri var eitt verka hannar, „Verk án titils“ tilnefnt til verðlauna í opnum flokki í hönnunarsamkeppninni Þráður fortíðar til framtíðar. Sú keppni var haldin í fyrsta sinn nú í ár í tengslum við Handverkshátíðina á Hrafnagili í Eyjafirði. Markmið með keppninni var að vekja athygli á möguleikum íslensku ullarinnar þegar kemur að handverki og hönnun.
Svala tekur þátt í störfum Heimilisiðnaðarfélags Íslands og er þar fulltrúi stjórnar í skólanefnd. Hún segir að íslenskt handverk hafi lengi verið sér hugleikið og vill fyrir alla muni halda því á lofti, og þá ekki síst íslenska búningnum og gömlu handbrögðunum. Sjálf hefur hún saumað íslenska búninga með gamla laginu, 19. aldar upphluti og faldbúning.
Allar vörur frá þessum framleiðanda







