Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Sigríður Sigurðardóttir

Sigríður Sigurðardóttir er fædd og uppalin á Aðaldal í Þingeyjarsveit og bjó þar fram á unglingsár. Þá lá leiðin austur í Vopnafjörð, en hún og eiginmaður hennar Heimir Magnússon flugmaður og þrjár dætur þeirra voru þar með loðdýrarækt um 15 ára skeið. Þá var Sigríður einnig kjötmatsmaður hjá Sláturfélagi Vopnfirðinga í 10 ár. Hún rekur ásamt fleiri konum, Handverkshús Mosfellsbæjar.

„Við seldum búið árið 1999 og fluttum til Reykjavíkur.  Þar kláraði ég lyfjatækninám sem ég hafði áður verið í í fjarnámi og síðan vann ég hjá Lyfju á árunum 1999 til 2008.  Eftir það hef ég verið að vinna í Grafarvogskirkju við ýmis störf en er einnig að sinna mínu handverki,“ segir Sigríður.  Hún rekur ásamt sex öðrum konum Handverkshús Mosfellsbæjar, en þar eru vinnustofur og verslun.

„Ég lærði glerbræðslu í Glit árið 2003 og hef síðan verið að þróa þetta smátt og smátt, minn eigin stíl og vörur.  Fyrir tveimur árum bætti ég svo við mig glerskartgripagerð,“ segir Sigríður.  Hún býður upp á fjölbreytt úrval af margs konar vörur, allt frá litlum eyrnalokkum og upp í heilu matarstellin.  „ég hef einnig gert töluvert af hlutum eftir óskum hvers og eins, verðlaunagripi sem dæmi og gjafir sem gefnar eru í sérstökum tilfellum.“

Sigríður hefur tekið þátt í nokkrum sýningum og árið 2005 var blómavasi sem hún hannaði og bjó til valin inn á sýningu hjá Handverk og hönnun. „Það var mjög ánægjulegt,“ segir hún. „Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast, verkefnin að þróast og það er gaman að vinna við og framkvæmda eftir eigin hugmyndum.“

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf