Flýtilyklar
Alda Sigurðardóttir
Alda Sigurðardóttir er Hafnfirðingur en hefur búið á Selfossi undanfarin 12 ár. Þar hefur hún rekið eigið fyrirtæki, Alvarlega félagið ehf, mynd- og textaþjónustu, ásamt manni sínum frá árinu 1999. Alda hefur margt starfað um æfina og lagt stund á nám af ýmsu tagi.
“Ég lærði hjúkrun og hef starfað við hana af og til. Eitt ár dvaldi ég í París og lærði fatahönnun og síðan var ég í fjögur ár í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist úr fjöltæknideild árið 1993“
“Það má segja að ég hafa alist upp við hannyrðir af öllu tagi, amma mín var mikil handavinnukona og mamma hefur rekið Hannyrðabúðina í meira en 40 ár svo þetta er í blóðinu að vera viðloðin spotta af ýmsum gerðum.“
Alda hefur einnig stundað rekstrarnám á Bifröst og lært á grafísk forrit í tölvum og þetta nýtist henni allt í rekstrinum.
Rekstur Alvarlega félagsins er mjög fjölbreyttur. Á verkstæðinu er m.a. framleidd handavinna sem byggir á íslenskum hefðum og munstrum, ullarflíkur og búningar af ýmsum gerðum. Unnið er við texta á ýmsum stigum og við umbrot og vefsíðugerð. Andlit fyrirtækisins birtist í Alvörubúðinni en þar eru framleiðsluvörurnar seldar auk þess sem þar er til sölu margvíslegur varningur sem fluttur er inn beint frá Indland. Auk þess er Alvörubúðin með ýmislegt handverk frá einstaklingum til sölu. Búðin er við Eyraveg 3 á Selfossi, rétt hjá Ölfusárbrúnni. Hún var opnuð árið 2001 sem og einnig vefurinn alvara.is.
Viltu ná sambandi við Öldu? Síminn er 892 4410 og 482 4410 / 482
3925.
Netfang: alvara@alvara.is
Heimasíða: http://www.alvara.is/
Allar vörur frá þessum framleiðanda








