Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Edda Björk Magnúsdóttir

Edda Björk Magnúsdóttir er Selfyssingur.  Hún hefur lengst af ævi sinnar búið á Selfossi, en flutti til Reykjavíkur og bjó þar um skeið auk þess sem hún bjó einnig í þrjú ár í Danmörku.  Hún hefur rekið Listasmiðjuna Rísl á Selfossi síðastliðin sex ár.

Edda Björk hóf nám í Hellerup Handarbejde Seminarium árið 1997, en sá skóli brautskráir handavinnukennara með réttindi til að kenna í framhalds- og lýðskólum.  Hún var í skinnadeild skólans, en námið þar svipar til klæðskeranáms hér á Íslandi. Aðstæður höguðu því svo að Edda Björk náði ekki að ljúka námi að fullu. Hún flutti heim á ný og hefur starfað við eitt og annað undanfarin ár.  Meðal annars hefur hún saumað fyrir Fatabúðina á Skólavörðustig síðastliðin 17 ár.

Fyrir nokkrum árum stofnaði hún Listasmiðjuna Rísl á Selfossi og hefur rekið hana síðan.  „Ég hef alla tíð saumað mikið og hannað föt, eins hefur ég verið nokkuð dugleg að prjóna.  Móðuramma mín var mjög flink að sauma, hún saumaði afskaplega vönduð og fín föt og ég lærði mikið af henni.  Föðuramma mín var meira í prjónaskapnum, þannig að ég ólst upp við handavinnu og fékk snemma áhuga fyrir henni,“ segir Edda Björk.

Meðal þess sem hún starfar við á vegum Listasmiðjunnar er að sauma og hanna fatnað, hún merkir líka t.d. íþóttafatnað og handklæði svo eitthvað sé nefnt og segir að verkefnin séu ærin.  Hún segist ekki hafa lagt næga áherslu á að koma vörum sínum á markað, en handverk hennar er þó til sölu í versluninni Geysi í Reykjavík. „Það vantar sjálfsagt í mig þessi sölugen, maður leggur meiri áherslu á að hanna og útbúa en hitt verður svolítið útundan," segir Edda og hlær.

Meðal þess sem hún býður upp á í Litlu búðunum eru húfur, töskur, vettlingar, kragar og handstúkur.

BEINT FRÁ FRAMLEIÐANDA!
S. 845 0095 / 567 9910
Netfang: risl@simnet.is

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf