Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Jón Guðmundsson

Jón Guðmundsson er plöntulífeðlisfræðingur og trérennismiður og vinnur eingöngu úr innlendum viði auk rekaviðar. Hann hefur verið í stjórn Félags trérennismiða á Íslandi frá árinu 2000 og verið með á samsýningum þess félags frá árinu 1998. Jón segir að innlendur/heimaræktaður viður getur verið mikilvægt hráefni í listsköpun svo og framleiðslu nytjahluta. Nýting þessa hráefnis sé  sjálfstætt markmið.

„Í lauftrjám má finna margs konar áferð, liti og mynstur. Með samlímingum má búa til margs konar mynstur. Við vinnslu viðarins er ávallt reynt að ná fram sérstöðu hvers viðarbútar, svo sem einstakt viðarmynstur. Suma viðarbúta er hægt að renna það þunnt að hægt er að nota þá í lampaskerma og nærri allir henta í skálar og krúsir. Einkenni rekaviðarins er að þar má finna maðksmogna búta, sem við vissar aðstæður fegrar hlutinn,“ segir Jón, sem hefur tekið þátt í fjölda sýninga og haldið tvær einkasýninar í Reykjavík.

BEINT OG MILLILIÐALAUST SAMAND VIÐ
FRAMLEIÐANDA ER ÓDÝRARA OG HAGKVÆMARA!

Jón Guðmundsson
Jakaseli 4
109 Reykjavík
Hs. 568 2488
S. 699 1499

 




Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf