Flýtilyklar
Brynja Davíðsdóttir
„Ís-mýs“ er heiti á skemmtilegu músaspili fyrir börn, þriggja ára og eldri. Brynja Davíðsdóttir, nemandi á þriðja ári við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri hannaði spilið fyrir nokkrum árum, eða veturinn 2002 til 2003 þegar hún bjó á Ítalíu. Þá átti hún tvö lítil börn, tveggja og fjögurra ára.
„Hugmyndin að spilinu kviknaði úti á Ítalíu en það var í fyrstu hugsað fyrir mig og börnin að leika okkur að heima við,“ segir Brynja. Hún ólst upp í þorpinu við Laugarvatn „og mér varð hugsað til æskuleikja í snjónum, vetraleikja krakkanna heima á Íslandi og teiknaði upp spil með litlum ævintýrum og vatnslitaði það. Heimurinn var gerður fyrir litlar mýs sem ég hafði leirað handa börnunum. Krakkarnir lifðu sig algerlega inn í spilið og það varð mjög vinsælt hjá okkur. „Við lentum oft í skemmtilegum ævintýrum og ég reyndi að koma þessari stemmningu sem ég upplifði sem barn fyrir í spilinu,“ segir Brynja. Þegar börn hennar urðu eldri hreif spilið vini þeirra og ákvað hún þá að láta steypa mýsnar úr málmblöndu, handmála þær og gefa spilið út til að aðrir gætu notið þess.
Þáttakendur í því eru fjórar skrautlega klæddar mýs sem lenda í ýmsu ævintýrum á leið sinni í lokahöfn. „ Það eru gömlu einföldu gildin, að gleðjast yfir litlum hlutum og litlum einföldum skemmtunum sem eru ríkjandi í þessu teningaspili,“ segir Brynja. Hún bætir við að spilið hafi leinnig uppeldislegt gildi því börnin hafi í höndunum þunga litla handmálaða hluti sem hafa meira gildi en fjöldaframleidd leikföng. Hverju spili fylgja fjórar litlar handmálaðar mýs, tvær stelpur og tveir strákar og einn teningur.
Brynja segir að sumir hafa sýnt músunum sérstakan áhuga og dæmi séu þess að fólk kaupi þær stakar og noti sem hilluskraut. Þá nefnir hún líka að músunum var eitt sinn raðað upp við hvern disk í brúðkaupi og þar hafi þær sómt sér vel. „Það eru auðvitað margir möguleikar og fólk getur haft þetta eftir eigin höfði,“ segir Brynja.
Beint frá framleiðanda!
Hafðu samband við Brynju.
s. 844 7633 OG 552 2584
http://www.brynjataxidermy.com/brynja-n2.htm
Netfang: nem.brynjad@lbhi.is









