Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Hulda Björg Baldvinsdóttir

Hulda Björg Baldvinsdóttir í Kópavogi nýtir stóran hluta sinna frístunda í að hanna flíkur og prjóna. Hún er Kópavogsbúi í húð og hár. Hulda Björg kveðst nær alla tíða hafa verið prjónandi , ýmist eftir uppskriftum eða þá að hún útfærði þær eftir eigin höfði. Hún prjónar og hannar lopapeysur og hefur nú nýverið „verið að skoða horn og bein“ eins og hún orðar það, en þau nýtir hún til skrauts í peysur sínar. Hún sé að þróa ýmsar hugmyndir í þeim efnum.

Með tímanum þróuðust mál á þann veg að Hulda Björg fór í auknum mæli að hanna þær peysu sem hún prjónaði.  Jafnframt fór hún að taka sér fleira fyrir hendur, bútasaum og kortagerð sem dæmi.

Hulda Björg er í fullu starfi við annað og sinnir handavinnunni í frístundum, hún prjónaði flíkur á ættlingja og vini eða útbjó bútasaumsteppi eða eitthvað annað, „og ég var eiginlega búin að metta gjafamarkaðinni í kringum mig, það voru allir ættingjar og vinir búnir að fá frá mér einhverja handavinnu.  Ég var samt ekki tilbúin að leggja þetta áhugamál mitt á hilluna og ekki var fýsilegt að safna upp heilmiklum lager á heimilinu,“ segir hún um þá ákvörðun sína að kynna og selja vörur sínar í Litlu búðunum.

ÞAÐ ER ÓDÝRARA OG HAGKVÆMARA AÐ
SKIPTA BEINT VIÐ FRAMLEIÐANDA!

Hulda Björg Baldvinsdóttir
Brekkusmára 7
201 Kópavogi
s. 554 1123 og 823 8153
Netfang:  huldabjorgb@simnet.is
og brekka7@simnet.is

 



Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf