Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Ragnheiður Jóhannsdóttir

Ragnheiður Jóhannsdóttir er kennari að mennt, með handavinnu sem valgrein, en hún starfar nú sem kennsluráðgjafi í Mosfellsbæ.  Hún er Skagfirðingur en bjó lengi í Borgarnesi og er nú kominn í Mosfellsbæ. Ragnheiður er félagi í Ullarselinu.

„Fyrsta minning mín um handavinnufikt tengist ömmu minni, ég var þá smástelpa og hún var að kenna mér ýmislegt eins og að festa tölur og fleira í þeim dúr,“ segir Ragnheiður. Hún byrjaði snemma að sauma föt á brúðurnar sínar og eftir því sem árin liðu varð handavinnan meiri að umfangi. „Ég hef alla tíð haft óskaplega gaman að öllu sem tengist handavinnu og hef sótt fjölda námskeiða af margvíslegu tagi,“ segir Ragnheiður.

Hún hefur um tíðina verið iðinn við prjónaskapinn og fór oft eftir uppskriftum, en stundum var hún ekki alveg sátt við þær og gerði sér þá lítið fyrir og gerði hlutina þá eftir eigin höfði. „Ég breytti þessu bara eftir því sem mér fannst best henta og það má segja að upp úr því hafi ég farið að hanna mínar eigin flíkur.  Oft fæ ég samt hugmyndir eftir að hafa skoðað blöð og annað handavinnuefni,“ segir hún.

Ragnheiður er með lopaskó til sölu í Litlu búðunum.  Þá býður hún líka upp á prjónaðar töskur, sem hún þæfir og skreytir með roði, þeim er svo lokað með tölu sem búin er til úr horni.  „Þannig að þær eru eins náttúrulegar og hægt er að hugsa sér,“ segir hún.

Eitt af því sem Ragnheiður hefur hannað og býður til sölu eru svonefndir Álfaskór.  „Ég fór að leika mér með ullarlitina og málin þróuðust á þann veg að ég prjónaði lága krakkasokka, eins konar skó og síðan vatt þetta upp á sig þannig að táin varð uppbrett og á hana sett bjalla.  Þetta hefur líkað vel, mörgum þykja þeir sniðugur, þannig að ég hef nóg að gera við að prjóna álfaskóna mína,“ Ragnheiður.

Ragnheiður er félagsmaður í Ullarselinu og á vörur í samnefndri verslun á Hvanneyri.

Beint og milliliðalaust samband borgar sig! Hafðu samband við Ragnheiði!
Ragnheiður Jóhannsdóttir
Hulduhlíð 7
270 Mosfellsbæ
Hs.  568 8868
Fars.  869 9913
netfang raggasj@gmail.com


 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf