Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Anna Jóhannesdóttir

Anna Jóhannesdótti  á Hjaltastöðum í Blönduhlíð í Skagafirði hefur getið sér gott orð fyrir hönnun og saumaskap.  Hún ver nú æ meiri tíma í handverk sitt, og hefur nóg að gera.  Á Hjaltastöðum hefur verið rekið kúabú og vann Anna við það allt þar til hún fékk slink á bakið fyrir nokkrum árum, sem hafði þær afleiðingar með tímanum að hún fékk slitgigt. Þrátt fyrir skerta starfsorku í kjölfarið sinnir hún handverkinu sem aldrei fyrr. Þau Hjaltastaðahjón hættu rekstri kúabúsins í nóvember 2007 og síðan hafa þau rekið blandað bú þ.e.nautaeldi og hrossabú en hyggjast endanlega hætta búrekstri um áramótin 2009/2010 og Anna hyggur á stofnun eigin fyrirtækis um framleiðsluvörur sínar.

Anna hefur alla tíð saumað mikið, en upphafið að því sem hún nú er að gera má rekja til þess að einhverju sinni var hún á leið í afmæli, vantaði gjöf og saumaði þá hnakktösku handa afmælisbarninu.  „Þá fór ég að framleiða slíkar töskur, en síðan hafa málin þróast og vörurnar orðið fleiri,“ segir hún en margir þekkja leður- og roðvesti hennar, en þau hafa víða farið og eru vinsæl til gjafa.

Anna nýtir líka það sem til er, en nokkuð er um að fólk komi með gamla jakka, töskur úr leðri eða annað þessháttar og hún býr til eitthvað alveg nýtt úr því gamla.  Þá hefur hún tekið að sér viðgerðir af ýmsu tagi, m.a. gert við kulda- og vinnugalla og á dögunum gerði hún við bílbelti! Fór þá bara með saumavélina góðu út á hlað og vann verkið þar.  Þetta segir hún að sýni að allt sé hægt.

 „Það hefur verið söluaukning hjá mér frá ári til árs og í raun aldrei jafnmikið að gera og einmitt núna,“ segir Anna enda er hún nú að undirbúa stofnun fyrirtækis um handverk sitt.  Hún nýtur liðsinnis dætra sinna, sem bæði hafa tekið þátt í hönnun og  veitt góð ráð varðandi notkun netsins í því skyni að kynna og selja vörunar.

Sími: 453 8229 og 892 8229


Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf