Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Ágústa Þorvaldsdóttir

Ágústa Þorvaldsdóttir býr á Skarði í Lundarreykjadal. en þar hefur hún raunar átt heima alla sína tíð. Árið 1987 tók hún ásamt manni sínum við búskap á bænum af foreldrum hennar.   Ágústa og fjölskylda, eiginmaður og þrír synir búa á Skarði með kindur, hesta og þar er líka járnsmiðja.  Ágústa er  grunnskólakennari og starfar við kennslu í Grunnskóla Borgarfjarðar að Kleppjárnsreykjum. „Ég stekk inn í búskapinn á álagstímum og sé alfarið um bókhaldið,“ segir hún.

„Ég hef alla tíð haft gaman af handavinnu og er að komast í gang aftur í þeim efnum eftir dálítið hlé,“ bætir hún við.   Um upphaf handavinnuáhugans  segir hún „að hann hafi bara komið í gegnum nefið,“ eins og hún orðar það.  Amma hennar og mamma prjónuðu og saumuðu eins og algengt var og gera enn.  Jafnframt kynntist  hún fjölbreyttum vinnuaðferðum í grunnskóla.

„Ég prjóna vörur og legg inn í Ullarselið og er meðlimur í þeim félagsskap.   Ég hef aðeins verið að þreifa fyrir mér að vinna eigin ull , það er ull af okkar kindum sem maðurinn minn klippir,  en hef ekki sett þær vörur á markað,“ segir Ágústa en býst við að ekki líði löngu áður en hún gerir það.

Þær vörur sem Ágústa býður upp á í Litlu búðunum eru teppi og vesti.  Teppin sem eru í sauðalitunum eru hekluð úr tvöföldum plötulopa.  Þau eru boðin í tveimur litasamsetningum .  Vestin eru prjónuð út tvöföldum plötulopa, hvít með gráu munstri sem hún setti saman.   „Þó ég sé nú í starfi utan heimilis er takmark okkar að byggja rekstur okkar upp þannig að við getum haft  sem mestar tekjur „ á hlaðinu“ eins og sagt er.  Handavinnan mín er einn liður í því.“

Ágústa er félagsmaður í Ullarselinu og á vörur í samnefndri verslun á Hvanneyri.

Viltu ná sambandi við Ágústu? Síminn er 435 1391 og 863 6131. Netfang: skard@vesturland.is

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf