Flýtilyklar
Þórey S. Jónsdóttir
„Ég hef unnið við margs konar handverk frá því ég var á barnsaldri,“ segir Þórey S. Jónsdóttir í Keflavík í Skagafirði. Undanfarin 17 ár, eða „frá því á seinni hluta síðustu aldar,“ eins og hún orðar það hefur hún starfað við handverk sitt í um það bil hálfu starfi. „Þetta hefur aukist í beinu samræmi við erfiðleika og samdrátt í landbúnaði,“ segir hún. Í fyrstu var þetta „dekurverkefni“ þar sem markmiðið var að sleppa á sléttu. Starfsemin hefur undið upp á sig og nú sinnir Þórey leikfangagerðinni af kappi og hefur af henni nokkrar tekjur.
Þórey hefur unnið barnaleikföng úr beinum og hornum, Barnagull kallar hún þau, en framleiðsla og sala á þeim hefur staðið yfir frá árinu 1992. Barnagull er samheiti yfir margar mismunandi vörur í vörulínu sem sækir innblástur sinn í barnaleiki fyrri tíma og framleidd er með hin hefðbundnu íslensku barnaleikföng að fyrirmynd. Allar vörurnar eru framleiddar úr 100% náttúrulegum hráefnum, þ.e. ekta beinum, hornum og leðri. Engir tveir hlutir eru nákvæmlega eins þar sem náttúran sjálf hefur séð um að framleiða þá í þeirri mynd sem þeir eru en mannshöndin aðeins lítillega breytt ásýnd sumra þeirra. Allar vörurnar eru meðhöndlaðar með eiturefnalausum efnum og litum.
„Ég hugsa þetta sem lið í að kynna og viðhalda barnamenningu fyrri tíðar og eins nýtast þessi leikföng líka vel sem verkfæri til að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna. Þessi leikföng eru heimild um leiki barna í gamla daga, en og þau eru líka gjafavara og minjagripir fyrir ferðamenn og þá sem vilja minnast eigin bernsku eða forfeðra sinna.“
Hver leikur er í skjóðu úr lituðu lambsleðri sem er lokað með reim úr hreindýraskinni og tölu úr leggjarbeini úr kind. Þórey mun bjóða þrjár mismunandi skjóður í Litlu búðunum, gullaskjóðu, völuskjóðu og völuspil. Frá árinu 1996 fylgir Barnagullinu skýringartexti á fjórum tungumálum eftir Þóreyju og skýringarmyndir eftir Áslaugu Jónsdóttur bókverkakonu, sem skýra hvaða bein sauðkindarinnar táknaðu oftast ákveðið dýr.
Allar vörur frá þessum framleiðanda








