Flýtilyklar
Sigurjón Gunnarsson
Sigurjón Gunnarsson í Reykjavík hefur um langt skeið stundað tréskurð. Hann á ekki langt að sækja sína listrænu hæfileika. Faðir hans, Gunnar Hjaltason var gullsmiður og er Sigurjón alinn upp við handverk og sköpun listmuna allt frá barnæsku. Hann er með Samvinnuskólapróf og Kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands. Þá var hann um sjö ára skeið hjá Hannesi Flosasyni tréskurðarmeistara og lauk öllum stigum hjá honum. Sigurjón hefur verið formaður Félags áhugamanna um tréskurð frá árinu 2006.
Sigurjón hefur um árin starfað við ýmislegt, m.a. verið verslunarstjóri í byggingavöruverslun, innkaupastjóri skólavörubúðar auk þess að starfa við kennslu í grunn- og framhaldsskólum. Sigurjón hefur verið með vinnuaðstöðu að Hólshrauni 5 í Hafnarfirði, Skurðstofa Sigurjóns, og þá hefur hann leiðbeint einstaklingum í tréskurði.
„Ég vinn mest í íslenskt birki sem ég fæ frá Hallormsstað,“ segir hann. „Ég legg mikla áherslu á notagildi þeirra hluta sem ég bý til."
Í Litlu búðunum er Sigurjón með svonefnda peysufatakonu, rennda úr íslensku birki með gróp undir pilsi, en þar er púði fyrir títuprjóna. Höfuð og háls er tappi yfir hólfi sem hentar undir nálar. Skotthúfan er svört, hún er lökkuð, skottið er grannir svartir þræðir og uppundinn vír myndar skúf-hólkinn. Peysufatakonan er skorin út að hluta, svunta og síðan stílfærð slaufa eins og konur höfðu þegar þær vildu hafa mikið við – án þess að fara í upphlut. „Amma mín notaði eingöngu peysuföt og hafði kasmírsjal um sig og skotthúfu þegar hún fór að heiman, en hún átti aldrei kápu,“ segir Sigurjón. „Auk þess að gera peysufatakonur bý ég til leikföng þar sem bæði er skorið í og tálgað. Í þau hef ég notað sem efnivið stofna af jólatrjám, mahoní, lind og furu.“ Sigurjón hefur svo dæmi sé tekið búið til húsdýr fyrir leikskóla Hjallastefnunnar. Hluti sína merkir hann með nafninu SÍLÓ, en það er gælunafn sem hann hefur borið frá barnsaldri.
Allar vörur frá þessum framleiðanda








