Flýtilyklar
Sigrún Helga Indriðadóttir
Sigrún Helga Indriðadóttir er borin og barnfæddur Skagfirðingur, sem alla tíð hefur haft mikinn áhuga á hvers kyns handverki og listsköpun. Sigrún er stúdent og garðyrkjufræðingur að mennt og hefur að auki verið iðin við að sækja námskeið sem tengjast handverki og eru þau af margvíslegu tagi, leðurvinna, þæfing, pappírsgerð, skrautskrift, silfursmíði, körfugerð, tálgun og vinnsla úr hornum og beinum svo dæmi séu tekin.
Sigrún býr á Stórhól í fyrrum Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, með manni sínum og 4 börnum „Ég er mikið náttúrubarn og hef dálæti á að vinna úr náttúrulegu hráefni, sér í lagi íslensku. Það er uppáhaldið mitt,“ segir hún. Á Stórhóli er sauðfjárbú og segir Sigrún að það gefi sér mikla möguleika á að nýta að hluta til eigið hráefni. Sigrún er félagi í Alþýðulist, félagi handverksfólks í Skagafirði. Í október 2009 opnaði Sigrún heimasíðu, runalist.is. Auk þess hafa vörur Sigrúnar verið til sölu í Upplýsingamiðstöð Norðurlands vestra í Varmahlíð, Möðrudal á Fjöllum og fleiri stöðum. Sigrún hefur nokkrum sinnum tekið þátt í handverkssýningunni á Hrafnagili og fengið góðar viðtökur.
„Það er erfitt að segja nákvæmlega hvar og hvenær handverksferillinn hófst. Oft hafa afmæli góðra vina eða önnur merk tímamót orðið kveikjur að einhverju nýju sem hefur svo hlaðið utan á sig,“ segir Sigrún. „Ég er svo ljónheppin að hafa Sauðskinn og sjávarleður á Sauðárkróki, en slík verksmiðja sem finnst ekki annars staðar í Evrópu er hreinlega gullnáma fyrir handverksfólk.
Sigrún Helga hefur getið sér orð fyrir fallegar myndir, kort og leðurtöskur, ýmist handsaumaðar með söðlasaum, sem er gamall íslenskur saumur eða vélsaumaðar. Nýjustu töskurnar eru Pendulina (hangandi) og Pumila, (smágerður) en nöfnin sækir hún i garðyrkjuna. Hún gerir líka kortaveski, vinnur úr heimatilbúnum pappír með liti og ull, skreytir tertur og býr til minjagripi af margvíslegu tagi. Tækifærin eru ótal mörg og um að gera segir hún að nýta sköpunarkraftinn til fulls og prófa sig áfram
Hún segist ætla að byrja í smáum stíl hjá Litlu búðunum, bjóða upp á nokkrar vörutegundir í fyrstu og þá er alltaf svigrúm að bæta við.
Allar vörur frá þessum framleiðanda








