Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Phillippe Ricart

Philippe Ricart er fæddur og uppalinn í Frakklandi, en hefur búið hér á landi í 30 ár.  Hann kynntist konu sinni í Frakklandi og flutti með henni til Íslands, fyrst á heimaslóðir hennar á Vestfjörðum þar sem þau bjuggu fyrstu árin. Frá 1988 hafa þau búið á Akranesi þar sem Philippe hannar og framleiðir listmuni og nytjahluti á vinnustofu sinni. Hann hefur haldið fjölda sýninga á verkum sínum og tekið þátt í samsýningum með öðrum listamönnum, tekið þátt í samkeppnum og unnið til verðlauna. Philippe var bæjarlistamaður Akraness árið 1996.

Frá árinu 1997 hefur hann eingöngu starfað við handverk og myndlist.  „Ég er með fjölbreytta framleiðslu og ég hef líka gaman af að prófa eitthvað nýtt,“ segir hann.  „Ég hef starfað við ýmis konar handverk í tæp 30 ár og er það svolítið breytilegt hvað ég geri hverju sinni. Í handverki eins og öðru ganga yfir tískubylgjur, sumt er vinsælt á einum tíma en ekki eins á öðrum. Ég er samt með kjarna af „klassískum“ vörum sem ég er alltaf með á lager. “

Philippe hefur selt handverk sitt víða. Framleiðsla hans er til sölu í verslunum og á söfnum á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni, í verslunum og galleríum, m.a. í Ullarselinu á Hvanneyri. Hann segir sölu á handverksmunum ágæta um þessar mundir og í hópi viðskiptavina séu bæði Íslendingar og útlendingar.

Meðal þess sem Philippe býður í Litlu búðunum eru útsaumspakkar til að sauma fuglapúða, en hann hefur um nokkurra ára skeið unnið að gerð slíkra púða sem eru með mynd af íslenskum fuglum. Hann notar íslenska ull við útsauminn. "Ég nota íslenskt hráefni eins mikið og mögulegt er,“ segir Philippe, sem hefur haldið nokkur námskeið þar sem hann miðlar af þekkingu sinni, enda þykir honum mjög mikilvægt að þessi gamla þekking glatist ekki.

Auk fuglapúðanna má finna spjaldofin bókamerki og lyklakippur eftir Philippe í Litlu búðunum. "Ég reyni að halda í gamlar hefðir í handverkinu og nota gamla vefnaðartækni, spjaldvefnaðinn, sem og gömul íslensk munstur í bland. “

Philippe er félagsmaður í Ullarselinu og á vörur í samnefndri verslun á Hvanneyri.

Beint og milliliðalaust samband við handverksmenn borgar sig!

Philippe Ricart
Háholti 11
300 Akranes
Sími 431 1887
Farsími 695 8738
Netfang: phiric@islandia.is
Heimasíða: www.islandia.is/philippe

 

 

Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf