Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Kristbjörg Magnadóttir

Kristbjörg Magnadóttir ef fædd og uppalin á Akureyri , en bjó um 18 ára skeið fyrir vestan, nánar tiltekið á Flateyri.  Hún flutti á ný til Akureyrar árið 1990 og hefur búið þar síðan. Kristbjörg var forstöðumaður handverks- og tómstundamiðstöðvarinnar Punktsins  á Akureyri um 14 ára skeið, en miðstöðin var sett á laggirnar í kjölfar erfiðleika í atvinnulífi á Akureyri kringum árið 1990.

„Ég sá auglýsingu um fund þar sem verið var að kynna fyrirhugaða starfsemi og á þeim tíma háttaði þannig til að ég var nýbúin að segja upp í mínu starfi og pabbi minn missti vinnuna.  Ég hvatti hann til að koma með mér á fundinn og það varð úr að við mættum.  Skemmst er frá því að segja að mér leist svo vel á framtakið að ég bauð mig fram til starfa. Þetta var mjög spennandi, nýjung í starfsemi af þessu tagi á Akureyri.  Þetta tímabil var mjög skemmtilegt og gefandi,“ segir Kristbjörg.

Hún kvaðst alla tíð hafa stundað handverk af ýmsu tagi, m.a. prjónað mikið og verið í fatasaumi. Á þeim tíma sem hún starfaði á Punktinum var efnt til fjölda námskeiða og var Kristbjörg iðin við að sækja þau, bæði hér á landi og erlendis. „Ég sótti þessi námskeið til að kynnast sem flestu og hafa einhverju að miðla,“ segir hún og bætir við að það hafi orðið til þess að hún hafi prófað fjölmargt á handverkssviðinu, skartgripagerð, glerlist, þæfingu auk námskeið um ýmiskonar prjónaskap.

Kristbjörg starfar nú í verslun í 50% starfi en sinnir einnig handverki.  Hún hefur vinnustofu heima hjá sér  við Hlíðargötu 11 á Akureyri . „Í fyrstu var handverkið mitt einungis tómstundagaman, en starfsemin hefur vaxið og ég  vona að svo verði áfram,“ segir Kristbjörg.  Hún hefur verið með sínar vörur á markaði á Fosshóli á sumrin og þá geta menn skoðað handverk hennar á vinnustofu  hennar. Meðal þess sem er til sölu í Litlu búðunum eru lampar sem hún hóf að gera í fyrra og hafa notið mikill vinsælda, þá býður hún upp á kertaglös og eins prjónavöru, þæfða vöru, auk skartgripa.

Beint og milliliðalaust samband við
handverksmenn er ódýrara!

Kristbjörg Magnadóttir
Hlíðargötu 11
600 Akureyri
S. 462 4626 og 868 3604
Netfang:  mben@simnet.is




Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf