Litlu búðirnar | Íslenskt handverk

Litlu búðirnar

Kristín Gunnarsdóttir

Kristín Gunnarsdóttir býr á Lundi í Lundarreykjadal, en er fædd og uppalin í Flóanum.  Hún kom í Borgarfjörð til að nema búfræði í Bændaskólanum á Hvanneyri og að því loknu vann hún á Hvanneyrarbúinu, m.a. sem fjósameistari í fjögur ár.

Hún er nú  bóndi á Lundi og býr þar  með kýr sem aðalbúgrein en á um 30 ær og  15 hross sér til skemmtunar.  Einnig er mórauð tík á bænum  sem og köttur sem vinnur við að halda fjósinu músalausu.  Nokkur haughænsni  eru til að sjá um lífræna úrganginn og heimilinu fyrir eggjum.  Endur eru líka á vappi en ekki til mikils gagns annars en skemmta með skvaldri.

„Ég lærði að prjóna þegar ég var 7 ára og hef prjónað síðan,“ segir Kristín, en um fermingu vann hún sér inn nokkurt skotsilfur með því að prjóna lopapeysur fyrir Álafoss. Síðan þá hefur hún nánast eingöngu prjónað úr ull.  „Um 1994 fór ég á tóvinnunámskeið á Hvanneyri og þá var ekki aftur snúið, ég fékk lánaðan rokk hjá Ullarselinu á Hvanneyri og sat löngum stundum og spann. Þetta þótti sveitungunum svo fyndið að þeir gáfu mér rokk þegar ég varð fertug og betri gjöf hefi ég varla fengið - Þökk sé þeim.,“ segir Kristín.                    

Hún  framleiðir talsvert af handspunnu bandi  sem og vörum úr því, þæfir dálítið en prjónar talsvert og þá nánast eingöngu úr ullarbandi.  Einnig vinnur hún  svolítið af tölum úr beinum. „Aðalatvinna mín er búskapur en tómstundir eru gjarnan nýttar til handverks sem gefur, ef vel  gengur, svolitla vasapeninga. Um þessar mundir er ég að prjóna nokkrar lopapeysur sem ég hanna sjálf og bý mynstrið til í.  Eftir sláturtíð þarf svo að sjóða og verka bein. Handverkið mitt hef ég eingöngu verið með í Ullarselinu á Hvanneyri og líkar vel því þar er eingöngu selt gæðahandverk,“ segir hún.

Í Litlu búðunum býður Kristín m.a. upp á peysu sem heitir Sturlunga og er úr handspunnu bandi. Tvær tegundir af húfum verður þar einnig að finna báðar þæfðar, önnur er með jökla ásýnd og heitir OK. Hin er með sjónarhorn á Bauluna og því dálítið keilulaga og heitir Baula. Þær eru báðar úr plötulopa frá Ístex.

Kristín er félagsmaður í Ullarselinu og á vörur í samnefndri verslun á Hvanneyri - eins og fram kom hér á undan.

Beint og milliliðalaust samband við
handverksmenn er ódýari leið!

Kristín Gunnasdóttir
Lundi
311 Borgarnes
S. 435 1417

Netfang: lundur@vesturland.is


 





Allar vörur frá þessum framleiðanda

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf