Mjög sérstakt smyrsl með margvíslega verkun. Upphaflega var það þróað fyrir íslenska hestinn á erlendri grundu sem hefur þurft að glíma við ýmis vandamál. Smyrslið reyndist svo vel að allir fengu að njóta þess. Það er mjög sótthreinsandi og hemur vel sveppa-og bakteríuvöxt. Dregur úr kláða, græðir og sefar. Smyrslið hefur sannað sig á erfið exemvandamál, þrálát sár, brunablöðrur og fl. Einnig hefur einstök virki þess á hálsbólgu og hósta vakið mikla athygli upp á síðkastið. Virkustu innihaldsefnin eru: menthol, tea-tree, fjallagrös, kamilla og einiber. 60 ml.