Þessi fallega peysa mun vekja athygli hvar sem er fyrir góða hönnun og útlit. Í peysunni er lopi.
Hulda býr til nokkrar gerðir af Reyfi. Á myndunum er Reyfi II. Reyfi III er eins og á mynd nema 20 cm síðari og Reyfi IV er 40-50 cm síðari. Verð: Reyfi II kr. 13.000, Reyfi III kr. 14.300 og loks Reyfi IV kr. 15.600. Reyfi I má svo finna hérna.
Þessi vara er prjónuð eftir pöntunum. Það getur verið blæbrigðamunur á peysunni þinni og myndunum í Litlu búðunum. Afgreiðslutími er ein til þrjár vikur. Tímalengdin veltur á verkefnastöðu handverksmannsins.